156. löggjafarþing — 28. fundur,  8. apr. 2025.

tekjustofnar sveitarfélaga.

98. mál
[17:09]
Horfa

Jens Garðar Helgason (S) (andsvar):

Virðulegur forseti. Ég vil þakka hv. þm. Þórarni Inga Péturssyni fyrir hans yfirgripsmiklu ræðu hér. Mig langar hins vegar að spyrja hv. þm. þingmann. Í máli sínu fór hann vítt yfir sviðið þannig að hv. þingmaður stoppaði ekki mjög lengi við hvert og eitt mál. En mig langaði aðeins að spyrja hv. þingmann nánar út í Grindavíkurnefndina. Nú voru gerð mannaskipti í Grindavíkurnefndinni í mótstöðu við heimamenn. Þetta er viðkvæmt mál. Þetta er ekki pólitískt mál og í Grindavík og hjá Grindvíkingum var mikil ánægja með störf nefndarinnar og sérstaklega kallað eftir því að þrátt fyrir að hér væri komin ný ríkisstjórn héldi sú Grindavíkurnefnd sem var við störf áfram, af því að málefni Grindavíkur eru í eðli sínu ekki pólitísk mál. Því langar mig að spyrja hv. þm. Þórarin Inga Pétursson: Telur hv. þingmaður að það hafi verið um mistök að ræða í rauninni að fara í að skipta um fólk í Grindavíkurnefndinni, nefndarmenn, í ljósi þeirrar viðkvæmu stöðu sem uppi er og hvað Grindavíkurnefndin var komin í gott og náið samstarf með heimamönnum?