tekjustofnar sveitarfélaga.
Virðulegur forseti. Ég þakka hv. þm. Jens Garðari Helgasyni fyrir góða spurningu. Hv. þingmaður kemur inn á að það sé ekki pólitík í þessu máli. Ég held að hluti af því að þessi mannaskipti urðu í nefndinni snúist væntanlega um einhverja pólitík en ég reikna með því að þeir sem um stjórnartaumana halda haldi að þeir séu á þeirri vegferð að þeim gangi í sjálfu sér gott til hvað það varðar. Varðandi þá einstaklinga sem fóru þarna út þá hafa báðir þeir aðilar mikla reynslu á sveitarstjórnarstigi, þ.e. Guðný Sverrisdóttir og Gunnar úr Garðabænum. Vissulega var komið þarna mikið og þétt samband þeirra á milli og spurningin er: Voru mistök að skipta? Eins og ég kom inn á í minni ræðu þá tel ég það yfirleitt vera þannig þegar ákveðin mannaskipti verða, og það er eðlilegt, að það hægist á þeirri þróun sem hefur átt sér stað, sem það sannarlega gerði. Eins og hv. þingmaður kom inn á sömuleiðis var þetta gert í mótsögn við það sem bæjarstjórn Grindavíkur hafði talað fyrir. En í þessu samhengi þá erum við bara á þessum stað sem við erum komin á í dag. Við breytum ekki því sem orðið er og því er það bara áfram gakk og að óska því fólki sem hefur tekið við keflinu velfarnaðar í sínum störfum. En mikilvægi þess að halda uppi svona traustum þræði, það er ómetanlegt. Þess vegna er alltaf hætta þegar þessi trausti þráður er rofinn, það verður erfiðara að spinna nýjan.