tekjustofnar sveitarfélaga.
Herra forseti. Nú hugsa hv. þingmenn Norðausturkjördæmis nákvæmlega eins þannig að ég óskaði eftir að koma í andsvar um nákvæmlega þetta með framkvæmdanefndina og Grindavíkurnefndina. Það vakti töluverða athygli að verið var að endurskipa hana að hluta. Reynslumiklir einstaklingar úr sveitarstjórnarmálum með afburðareynslu og þekkingu á þeim málaflokki voru teknir út, skipt út fyrir aðra. Það er þannig að fimmtudaginn 10. apríl er nákvæmlega eitt og hálft ár síðan þessi sigdalur myndaðist í miklum jarðhræringum og jarðskjálftum, jarðskjálftahrinu á þessu svæði, þannig að þetta er orðið langt tímabil þótt okkur sé það mjög ferskt í minni þegar þetta var að ganga yfir. Við sem vorum hérna í þinginu á þeim tíma þegar þetta gekk yfir — þetta var mjög minnisstæður atburður og það sem fylgdi á eftir. Núna erum við komin í áttunda eða níunda gosið og allt á fleygiferð. Þessi framkvæmdanefnd og sú reynsla sem var þar, ég sé töluvert eftir að hún hafi ekki fengið að skila sinni vinnu. Nú þekkir hv. þm. Þórarinn Ingi Pétursson ágætlega til í Grindavík og þekkir hug fólks þar og hefur haft mikil samskipti við marga þá sem þar búa. Hvernig skynjar þingmaður úr Grýtubakkahreppi, Norðausturkjördæmi, þessa stöðu núna hjá þeim sem þar búa? Ég er kannski líka að hugsa bara með rekstur fyrirtækjanna og annað. Þetta er orðið gríðarlega erfitt. Við vorum að einhverju leyti að nota Covid-aðferðirnar, stuðningslán, brúarlán og slíka hluti. En hvernig sér hv. þingmaður framhaldið?