156. löggjafarþing — 28. fundur,  8. apr. 2025.

tekjustofnar sveitarfélaga.

98. mál
[17:20]
Horfa

Þórarinn Ingi Pétursson (F) (andsvar):

Virðulegi forseti. Ég þakka hv. þm. Njáli Trausta Friðbertssyni fyrir góða spurningu. Nú erum við komin að því sem ég held að þetta snúist meira og minna allt um, þ.e. mannlega þættinum. Það er þannig að drifkraftur mannsins endurspeglast yfirleitt í líðan fólks og hvernig þeir sjá framtíðina fyrir sér. Ég gat ekki betur séð og heyrt á þeim einstaklingum sem við hittum þarna í okkar heimsókn, og höfum svo hitt á fundum hér sömuleiðis, en að þar væri verið að horfa fram á veginn. Auðvitað eru þarna áskoranir sem snúa að fiskvinnslunni en ég gat ekki betur heyrt en að menn horfi til framtíðar og horfi til þess að Grindavík verði áfram öflugur útgerðarbær og sömuleiðis verði þarna blómlegt mannlíf. En það gera sér líka allir grein fyrir því að það sem var verður ekki aftur með sama sniði, það liggur alveg fyrir. Við þurfum samt sem áður alltaf í þessu samhengi, og ég ítreka það held ég aldrei nógu oft, að hlusta á fólkið, standa við bakið á því og þá verður hægt að stíga yfir þær hindranir og torfærur sem verða á vegi einstaklinga og fyrirtækja í Grindavík.