156. löggjafarþing — 28. fundur,  8. apr. 2025.

tekjustofnar sveitarfélaga.

98. mál
[17:24]
Horfa

Þórarinn Ingi Pétursson (F) (andsvar):

Virðulegi forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir spurninguna og ég met það þannig að það sé alltaf ágætt að vera með einhverjar viðbragðsáætlanir, skapalón kom nú hér fram í andsvari. Viðbragðsáætlanir eru góðar og það er gott að viðhalda þeim og æfa þær en það er nú einu sinni þannig að við erum þjóð sem hefur tekist á við náttúruöflin í gegnum tíðina. Vissulega eru núna svona óræð tímabil undir fótum okkar á vissu svæði á landinu en við höfum byggt þetta land hér í yfir 1000 ár og það hefur ýmislegt gengið á í gegnum tíðina; fjöldi eldgosa, snjóflóð, aurskriður og annað, og við höfum alltaf tekist á við það í sameiningu sem þjóð. Þetta byggir á því að við ætlum að hafa byggð í landinu alls staðar, það er lykilatriði, og ef aðilar hafa áhuga á því og vilja búa á þessum svæðum þá eigum við að standa á bak við það. Í þeim áskorunum sem fram undan eru er vissulega gott að hafa viðbragðsáætlanir við því sem hugsanlega getur gerst, þá getum við brugðist við, en það verður þannig að við stýrum náttúrunni aldrei. Við getum unnið með henni og þróast með henni. Það er lykilatriði.