156. löggjafarþing — 28. fundur,  8. apr. 2025.

tekjustofnar sveitarfélaga.

98. mál
[17:26]
Horfa

Þorgrímur Sigmundsson (M):

Herra forseti. Fyrst ber að þakka þá góðu umræðu sem hér er búin að eiga sér stað í dag um þetta mikilvæga mál. Frumvarp það sem við ræðum hér framlengir heimildir til niðurfellingar á fasteignasköttum vegna áframhaldandi óvissu um búsetu í Grindavík. Það byggist á bráðabirgðaákvæðum sem Alþingi samþykkti fyrst með lögum nr. 4/2024 vegna náttúruvár. Samkvæmt stjórnarskránni og lögum um tekjustofna sveitarfélaga þarf sérstaka lagaheimild til að fella niður skatta. Þetta góða frumvarp tryggir að Grindavíkurbær brjóti ekki í bága við 40. gr. stjórnarskrárinnar um skattlagningarheimild. Mig langar hins vegar, herra forseti, að fara kannski, eins og ég gerði í raun í mjög stuttu máli í andsvörum mínum við hv. þm. Vilhjálm Árnason, aðeins yfir þá sögu sem við eigum sem þjóð í glímunni við náttúruna til að setja þetta aðeins í samhengi og mun svo seinna í þessu erindi mínu víkja að því hvers vegna ég tel mikilvægt að við lítum til baka.

Herra forseti. Í upphafi byggðar voru viðbrögð við náttúruhamförum fyrst og fremst einstaklings- og samfélagsbundin þar sem fáir eða engir formlegir innviðir voru til staðar. Áhrifamiklar náttúruhamfarir á borð við Skaftárelda 1783–1784 sýna skýrt hvernig samfélagið bregst við í neyð. Hungursneyð, sjúkdómar og dauði gengu yfir landið og um fimmtungur þjóðarinnar lést. Viðbrögðin einkenndust af trúarlegum skýringum þar sem margir töldu að guð væri að refsa þjóðinni. Prestarnir gegndu mikilvægu hlutverki í að leiða samfélögin í gegnum erfiðleikana. Í gegnum bænir og sálma var reynt að finna huggun. Jafnframt má nefna hvernig hreppar og kirkjur tóku að sér aðstoð við fátæka sem var eitt af fáum skipulögðum úrræðum þess tíma.

Á 19. öld og fram á 20. öld var sveitin ein sterkasta eining samfélagsins. Nágrannar og ættartengsl voru grundvöllur þess að fólk komst í gegnum erfiðar hamfarir, svo sem kuldaskeið, fæðuskort og landeyður. Viðbrögðin fólust oft í því að flytja til betri svæða eða taka á móti nauðstöddum ættingjum. Með tímanum fóru þó að myndast skipulagðar viðbragðsáætlanir og með stofnun almannavarna á 20. öld varð til kerfisbundið viðbragðskerfi sem við byggjum enn á í dag. Heimaeyjargosið 1973 er gott dæmi um hversu mikil og öflug viðbrögð íslenska þjóðin getur sýnt.

Í nútímasamfélagi hafa tækniframfarir, menntun og rannsóknir gert það kleift að bregðast fyrr og betur við náttúruhamförum. Jarðvísindastofnanir, Veðurstofan og almannavarnir vinna saman að því að greina fyrirboða og vara almenning við. Fólk er frætt í skólum og í gegnum fjölmiðla um hvernig eigi að bregðast við hættuástandi. Þrátt fyrir þessa fagvæðingu og tækni má samt segja að samhjálp og samfélagsleg samheldni skipti lykilmáli. Þegar eldgosið hófst á Reykjanesskaga á 21. öldinni mátti sjá mikla samstöðu, hjálpsemi og vilja til að aðstoða þá sem þurftu að yfirgefa heimili sín og þannig má segja að viðbrögðin séu bæði tæknileg og í senn sögulega manneskjuleg.

Viðbrögð Íslendinga við náttúruhamförum hafa tekið miklum breytingum frá landnámi til dagsins í dag. Áður voru þau byggð, eins og áður segir, á trú og hefðum og samfélagslegum tengslum en í dag er áhersla lögð á fagleg vinnubrögð, skipulag og forvarnir. Samt sem áður er ljóst að ákveðin gildi eins og samhjálp, þrautseigja og sveigjanleiki hafi verið rauður þráður í allri þessari sögu. Þrátt fyrir breytta tíma og aðstæður stendur íslenskt samfélag enn í dag sem samhentur hópur sem kann að takast á við náttúruöflin, bæði af skynsemi og samhug.

Hvers vegna, frú forseti, að fara yfir alla þessa sögu? Jú, það er vegna þess að ég tel, eins og ég vék að í máli mínu í stuttum andsvörum við hv. þm. Vilhjálm Árnason, að við verðum ekki aðeins að afgreiða þetta góða frumvarp sem hér liggur frammi fyrir páska. Nú hefur verið tilkynnt hér í ræðustóli af hv. formanni nefndar að boðað sé til fundar, ef ég tók rétt eftir, klukkan fimm síðdegis á morgun og er það vel. En ég tel að í ljósi sögunnar gefist hér gott tækifæri til að fara aðeins yfir verkfærakistuna. Þá meina ég fyrst og fremst vegna hamfara til framtíðar því að við erum ekki sem þjóð að fara í gegnum okkar síðustu hamfarir. Við höfum búið hér með miklum jarðskjálftum, aurskriðum, hamfaraveðrum, svo ekki sé minnst á mannskæð snjóflóð í gegnum áratugi, árhundruð ef ekki árþúsund. Þess vegna tel ég að við þurfum að nýta þetta tækifæri sem hefur skapast hér í umræðunni til að taka þessa umræðu svolítið lengra, taka hana í þá átt að ræða hvaða verkfæri við ættum að búa til til að grípa til til framtíðar svo að hér sé um almennari viðbrögð að ræða, þ.e. þessi salur hér þurfi ekki í hvert skipti sem hamfarir ganga yfir þjóðina að grípa til svo mjög sértækra aðgerða heldur að við höfum, eins og var orðað hér í ræðustóli rétt áðan, eitthvert skapalón sem nýta megi við ólíkar hamfarir, hvort heldur það eru ofanflóðavarnir, skjálftar eða jarðeldar, að við séum á þeim stað að þurfa ekki einhvern veginn að byrja upp á nýtt í umræðunni hér í þessu. Við eigum vissulega löggæslu í landinu og almannavarnir og öflugar björgunarsveitir sem kunna til verka á verkstað. Það er ekki það sem vísað er til hér heldur frekar lagaramminn, að hann geri í auknum mæli og betri mæli ráð fyrir því að við þurfum því miður af og til að standa upp hér og taka þessa umræðu hvernig við ætlum að bregðast við á hverjum og einum stað.

Sögulegt samhengi gefur þó, og það frumvarp sem hér er til umræðu er þarft og gott og þarf að afgreiða sem fyrst, ásamt hvatningu minni um að nýta þetta tækifæri til að smíða verkfæri í kistuna sem við getum gripið úr hillunni þegar við á — það ber þó að gjalda varhuga við því að inn í slíkt skapalón verði smíðuð of mikil forræðishyggja. Við höfum fundið það í umræðunni í dag að það sem kannski fer mest fyrir brjóstið á fólki sem býr á hamfarasvæðum er þegar verið er að fjalla um þau án þeirra. Það held ég að sé eitthvað sem við þurfum að hafa í huga við allar slíkar aðstæður, að nærsamfélagið hafi góð tæki og góð tækifæri til að móta þær lausnir sem eiga við á hverjum stað en þó innan þessa skapalóns sem ég er að kalla hér eftir, innan þeirra almennu viðbragðsáætlana sem ég er að kalla eftir, því að ég held að sú góða vísa verði ekki of oft kveðin að þrátt fyrir allar góðar þverhandarþykkar skýrslur þá er til fræðimaður í landinu sem allt of sjaldan er nýttur, hvort heldur við tölum um vegalagningu, flugvallargerð, til að mynda í Hvassahrauni eða annars staðar. Það er til fræðigrein og fræðimaður í landinu sem er allt of sjaldan nýttur. Hann er ekki til í stjórnskipuninni en hann er til alls staðar á landinu og það er heimafræðingurinn. Það er bóndinn sem bendir okkur á að vegstæðið fyrirhugaða sé ekki á góðum stað vegna flóðahættu, aurskriða eða einfaldlega mikillar snjósöfnunar. Það er heimafræðingurinn sem bendir okkur á að hér þurfi að taka tillit til einhverra sérstakra aðstæðna varðandi uppbyggingu varnargarða og svo mætti áfram lengi telja. Það er nefnilega alveg, ég ætla ekki að segja séríslenskt en það er þó alla vega einkenni á þjóðinni sem hefur þurft að lifa með þessari miklu náttúruvá kynslóð fram af kynslóð að það býr gífurlega mikil þekking hringinn í kringum landið á aðstæðum á hverjum og einum stað, auk auðvitað þeirrar þekkingar sem býr svo í fræðimannasamfélaginu og vísindasamfélaginu. Hana tökum við nú yfirleitt til álita og fylgjum oftar en ekki þegar verið er að smíða lög eða bregðast við sérstökum aðstæðum. En það er mat þess sem hér stendur að það sé of algengt, svo heggur nærri reglu, að ekki sé gefinn nægilega góður gaumur að þeim röddum sem heyrast heiman úr héraði.

Eins og ég hef hér vikið að þá er ég ekki eingöngu að ræða þetta í samhengi Grindavíkur og þess góða frumvarps sem við ætlum að afgreiða hér úr þessari umræðu í dag og boðað hefur verið til aukafundar seinni partinn á morgun heldur er ég að vísa til þess almennt í samfélaginu hvort við þurfum ekki að fara að líta í auknum mæli til að mynda til sögulegra heimilda, staðbundinnar þekkingar, eða eins og sagt var í áramótaskaupinu: Ertu kunnugur staðháttum? Er maðurinn kunnugur staðháttum? Það skiptir verulegu máli í öllum viðbrögðum við náttúruvá sem og allri framkvæmd og lagasetningu hér í þessum sal að við hlustum á fólkið sem býr og starfar í því umhverfi sem við erum að ræða hverju sinni, að hér séu ekki einungis lagt til grundvallar álit sérfræðinga, lærðra manna á sviði jarðvísinda, eldfjallafræða, ofanflóðavarna og svo mætti áfram telja, heldur því gefinn alveg sérstakur gaumur, og ástæðulaust að vera að senda menn með bréf yfir bæjarlæk til þess, hvað heimafólkið á viðkomandi stað telur að best sé að gera í stöðunni og hvað henti því að gert sé og það sé gert með eins lítilli forræðishyggju og kostur er, sem þýðir með öðrum orðum að hver og einn sem fellur undir viðbrögð samfélagsins, almannavarna, lögreglu og þess háttar hverju sinni — að hans einstaklingsfrelsi, hans ákvörðunarfrelsi er varðar hans hagi og hans fjölskyldu, hvort heldur er öryggisins vegna eða bara hreinlega fjárhagsins vegna — að við gefum einstaklingnum í auknum mæli tækifæri á að tjá sig og taka ábyrgð, innan auðvitað einhverra eðlilegra skynsemismarka, á þeim viðbrögðum sem hann kýs að viðhafa í þeim aðstæðum og því umhverfi sem eiga við hverju sinni.

Nú er það svo að þessi umræða hefur verið málefnaleg og upplýsandi hér í dag og síðast þegar ég leit á mælendaskrá þá sýndist mér fleiri eiga eftir að leggja orð í belg og væntanlega munu því fleiri sjónarhorn komast á framfæri og sá sem hér stendur öðlast meiri upplýsingu og læra meira. En ég held og hygg að hvort sem við erum að tala um jarðelda sem geisað hafa í og við Grindavík undanfarin misseri eða þau sorglegu ofanflóð sem við höfum þekkingu og reynslu af á tiltölulega nýliðnum áratugum þá sé mikilvægt að við smíðum okkur einhvern heildarramma um hvernig bregðast skuli við afleiðingunum. Hér er ég fyrst og fremst að tala um hvernig bregðast skuli við afleiðingunum, ekki hvernig bregðast skuli við á slysstað eða hamfarastað á meðan hamfarir ganga yfir, það er eðli málsins samkvæmt kannski meira í höndum almannavarna, en þessi salur, Alþingi Íslendinga, þarf að móta sér eitthvert skapalón til framtíðar sem lágmarkar þörfina á sértækri lagasetningu hverju sinni, að við eigum hreinlega í handraðanum, í okkar verkfærakistu, eitthvert skapalón til að grípa til sem, svo það sé ítrekað, skerði þó ákvörðunarfrelsi einstaklingsins sem allra minnst.