156. löggjafarþing — 28. fundur,  8. apr. 2025.

tekjustofnar sveitarfélaga.

98. mál
[17:42]
Horfa

Njáll Trausti Friðbertsson (S) (andsvar):

Virðulegi forseti. Ég ætla að byrja á að þakka hv. þm. Þorgrími Sigmundssyni fyrir fína ræðu eða kannski punkta sem snúa að forræðishyggjunni varðandi Hvassahraun og heimafræðingum, eða bændum eins og myndu kannski líka falla þar undir, sem mig langar aðeins að koma inn á. Það er mikilvægt að standa með fólkinu sem býr í Grindavík og vill búa í Grindavík og uppbyggingu þar á ný en það verður ekki gert nema fólki sé treyst til þeirra verka að bjarga sér sjálft og dregið úr forræðishyggjunni að mörgu leyti. Þarna þarf að finna einhvern jafnvægispunkt sem snýr að þessu. En auðvitað þarf að hjálpa fólki í veikri stöðu sem er uppi núna og ekki setja í enn frekari óvissu eins og er kannski að mörgu leyti að gerast núna. Það er ekki fyrirsjáanleiki til staðar og eins og stjórnvöld hafa verið að setja það upp núna þá er tilfinningin sú að staða þessa fólks sem veikast stendur sé jafnvel að veikjast miðað við það sem farið var af stað með á síðasta ári. Ef hv. þm. Þorgrímur Sigmundsson gæti aðeins komið inn á þetta, sem hann kom reyndar inn á í sinni ræðu sem snýr einmitt að þessari forræðishyggju. Síðan tek ég kannski bara Hvassahraunið í seinna andsvari.

En heimafræðingarnir og bændur. Þetta þekkjum við bara mjög víða varðandi náttúruna á Íslandi. Við þekkjum þetta mjög vel varðandi vegagerð, varðandi snjóflóð, snjósöfnun og slíka þætti. Ég veit til þess að hv. þingmaður hefur víða keyrt um vegi landsins.