156. löggjafarþing — 28. fundur,  8. apr. 2025.

tekjustofnar sveitarfélaga.

98. mál
[17:44]
Horfa

Þorgrímur Sigmundsson (M) (andsvar):

Frú forseti. Ég þakka hv. þm. Njáli Trausta Friðbertssyni fyrir bæði spurningar og vangaveltur. Ég ætla að byrja á því að taka undir með hv. þingmanni og ég held að það hafi enginn stigið hér í pontu í dag sem ekki er sammála okkur um að standa beri með Grindvíkingum.

Það gleður mig hvaða punkta hv. þm. Njáll Trausti Friðbertsson tók út úr þessari ræðu minni, annars vegar um einstaklingsfrelsið, þetta grundvallaratriði að fólki sé treyst til að taka þær ákvarðanir sem eru því fyrir bestu, innan einhvers skynsamlegs ramma auðvitað. Það munu koma upp dæmi þar sem þarf að grípa fram fyrir hendurnar á fólki. Það er ljóst. En það á hins vegar að heyra til algerra undantekninga. Hin almenna regla á að vera sú að einstaklingurinn ráði sinni för.

En hvað varðar heimafræðingana, sem er, svo það sé nú líka tekið fram, heimasmíðað orð, og bændur þá tek ég heils hugar undir með hv. þingmanni. Þarna hefur mér þótt verulega skorta á til fjölda margra ára og jafnvel áratuga að opinberir aðilar, vísindamenn og aðrir, taki tillit til þeirrar þekkingar sem býr heima í héraði, sem býr í hreppunum, á hverjum stað, hvort sem er varðandi náttúruvá eða annmarka á fyrirhuguðum opinberum framkvæmdum í ljósi snjósöfnunar eða annars. Ég geri fastlega ráð fyrir að hv. þm. Njáll Trausti Friðbertsson sé mér sammála þarna.