156. löggjafarþing — 28. fundur,  8. apr. 2025.

tekjustofnar sveitarfélaga.

98. mál
[17:51]
Horfa

Jens Garðar Helgason (S) (andsvar):

Virðulegur forseti. Ég vil þakka hv. þm. Þorgrími Sigmundssyni fyrir hans yfirferð hér um málið og nálgun hv. þingmanns á almannavarnir og í rauninni viðbúnað okkar almennt og hvort við séum í raun nógu vel viðbúin. Líka kannski hvort við séum að horfa til staðbundinnar þekkingar nógu mikið. Það var náttúrlega mjög athyglisvert í ræðu hv. þingmanns þar sem hann kom inn á margt sem hefur gerst á Íslandi á undanförnum árum. Ég held náttúrlega að það versta sem hefur komið fyrir íslenska þjóð og var nánast búið að gera landið hér óbyggilegt séu Skaftáreldar 1783–1784 þar sem varð til hraun sem er 580 km² og 10.000 manns dóu, 20% þjóðarinnar, 80% af sauðfé, 60% af hrossum og 50% af nautgripum drápust. Landið var nánast óbyggilegt en við komumst fram úr því og við munum komast fram úr öðrum áskorunum.

En þá langar mig að spyrja hv. þingmann: Nú eru margar nýjar áskoranir sem við erum að horfa upp á eins og að aurskriður eru að verða tíðari með breyttu tíðarfari og mikill ágangur sjávar á sjómannvirki og annað. Þetta er kannski í framhaldi af þessari almannavarnaumræðu sem við erum að tala um almennt og viðbrögð okkar. Telur hv. þingmaður að við þurfum í rauninni að útvíkka almannavarnanefndirnar? Þurfum við að fá aðkomu fleiri að þeim eða breyta fyrirkomulaginu? Hvernig sér hv. þingmaður fyrir sér fyrirkomulagið sem hann var að tala um áðan?