156. löggjafarþing — 28. fundur,  8. apr. 2025.

tekjustofnar sveitarfélaga.

98. mál
[17:57]
Horfa

Þorgrímur Sigmundsson (M) (andsvar):

Frú forseti. Lærdómur. Ræðan mín hér áðan fjallaði einkum um tvennt; annars vegar söguna, þær miklu hamfarir sem við sem þjóð höfum gengið í gegnum en einhvern veginn auðnast að koma alltaf standandi niður, með mannfalli, fjárskaða og almennt bara að búpeningur hafi fallið hér í stórum stíl. En við erum sem betur fer komin á annan stað, þ.e. að við búum enn þá við sömu ógnina en við búum yfir mun meiri þekkingu, öflugri almannavörnum og miklu öflugri tækjabúnaði svoleiðis að viðbragðsgeta okkar við slíkum hamförum er auðvitað allt önnur en var. Lærdómurinn er væntanlega tvíþættur að mestu; annars vegar sá lærdómur sem vettvangsaðilar taka með sér út úr hverju og einu verkefni, ekki síður verkefnunum í kringum Grindavík en öðrum og þar eru fagaðilar á ferðinni. Ég ætla ekki hér í þessum ræðustóli að fara að reyna að draga lærdóm fyrir þeirra hönd. En hinn lærdómurinn sem í boði er fyrir þá sem starfa á vettvangi stjórnmálanna og þar eru líka talsverð tækifæri til að læra — vísa ég þar til áðurnefnds skapalóns eða verkfærakistu eða hvaða orð menn kjósa að nota í þessu samtali okkar hér í salnum. Þar held ég að við getum tekið spor í átt til gæfu, safnað í verkfærakistuna okkar einhverjum þeim ferlum sem eru almennari og auðveldara að grípa til í viðbrögðum við eftirköstunum. Almannavarnirnar og fagaðilarnir takast á við aðstæður á staðnum en við þurfum að sníða skapalón sem hentar í sem víðustu samhengi þeim eftirköstum sem kunna að koma upp.