tekjustofnar sveitarfélaga.
Virðulegur forseti. Ég vil byrja á að þakka fyrir þessa góðu umræðu sem hefur farið hér fram í dag, hefði vissulega viljað sjá hana fara fyrr fram undir stærra máli heldur en þessu en við höfum nýtt okkur hér fordæmi formanns hv. umhverfis- og samgöngunefndar og tekið almennt til máls um þetta. Fyrstu ræðu minni varði ég í að tala eingöngu um málið en nú ætla ég í þessari stuttu ræðu minni sem ég fæ tíma í núna að fara yfir í örstuttu máli stöðuna eins og hún er núna, hvernig ég sé framhaldið.
Verkefnið núna er að nýta þennan krítíska tíma sem er núna til þess að endurreisa samfélagið í Grindavík og nýta alla þá innviði og það sem eftir er af samfélaginu, atvinnulíf og þær tengingar og annað sem fólkið er og byggja þannig á þeirri góðu stöðu sem er þar miðað við aðstæður. Ég ætla ekki að gera lítið úr þeirri hættu sem er þarna en það bara felst viss hætta í að búa í íslenskri náttúru og við þurfum að aðlaga okkur henni og ég tel að við höfum gert það mjög vel í Grindavík og þurfum að fara að treysta á það og gefa fólkinu þetta frelsi til þess að endurbyggja samfélagið og það mun vera lausn fyrir marga og sálgæslulegt atriði að fá svolítið að byggja samfélag sitt aftur og byggja það upp. Það mun hjálpa mörgum, það mun vera lausn fyrir marga en ekki alla, alls ekki alla. Því er í þessu sambandi líka mikilvægt að standa með íþróttalífinu. Það er íþróttalíf sem heldur samfélaginu saman og við höfum þurft að bíða allt of lengi eftir að stjórnvöld klári það fyrir fótboltann, gerðu það vel með körfuboltann en almennt með íþróttafélaginu verður að gera það.
Varðandi það sem ég fór yfir í fyrri ræðu minni áðan, að veita þeim sem eru í veikustu stöðunni einhver svör, þá tel ég mikilvægt, fyrst ég sé formann hv. efnahags- og viðskiptanefndar hér í salnum, að við fjöllum einmitt um Þórkötlu og löggjöfina þar í kring í nefndinni þar sem við erum með það inni núna, af því að það er stór þáttur í því hvernig við endurreisum samfélagið hratt að gefa fólki svigrúm til að gera umönnunarsamning um fasteignirnar sínar og prófa að máta sig við það að flytja heim. Síðustu atburðir sýndu okkur það nefnilega að því nær sem hraunið nálgast Grindavík því meiri er fyrirvarinn og því minni er krafturinn. Það er það sem jarðfræðingarnir hafa sagt og það virtist raungerast nú. Þetta var áttunda skiptið og allt viðbragð gekk eins og í sögu. Því eigum við að gefa fólki tækifæri á þessu og nýta þessa miklu innviði sem eru þarna núna.
Ég segi það að uppkaupin heppnuðust frábærlega þar sem örugglega hátt í 90% af fólkinu fengu lausn sinna mála og gátu farið að bjarga sér. Það hafa ekki allir gert og það þarf að hugsa um það og ekki síst mikið af litlu og meðalstóru fyrirtækjunum, sem er því miður að blæða út núna og þurfa að fá svör strax, hluta af þeim gagnast það að fleiri flytji heim, það komi fleiri ferðamenn og það sé ýtt undir það að við séum að nýta innviðina en það ekki alltaf talað niður og höfð höft. Það er algerlega gríðarlega mikilvægt.
Svo er það sem við vorum að ræða í dag, rekstrarhæfi Grindavíkurbæjar og það sé farið í það að viðhalda innviðunum, að það sé öruggt rafmagn, vatnsveitu- og fráveitukerfi virki, göturnar, að það sé fyllt upp í sprungurnar til þess að laga ásýndina þannig að ferðamönnum og fólki líður betur í bænum. Ég segi það bara: Það er alls staðar áhætta á Íslandi, hvort sem það er í umferð, fljótum, ofanflóðum, jarðskjálftum eða hvað það er. Í Grindavík, svo almenningur skilji það hérna í lokin, þá eru komnir varnargarðar, það er búið að jarðskanna svæðið, það er búið að girða sprungurnar af. Það er búið að gera áhættumat og öryggisáætlanir fyrir þau fyrirtæki sem eru starfandi. Það eru milli 700 og 800 manns sem mæta daglega til vinnu í Grindavík í dag, um eða yfir 100 manns sem gista þar. Það sem vantar núna er bara að hætta þessum hræðsluáróðri og byrja að tala svæðið upp, tala upp þá góðu vinnu sem þarna hefur verið gerð. Það mun leysa vandamálið fyrir mjög marga en þar koma stjórnvöld sterk inn í gegnum Þórkötlu, gefa fólki tækifæri á því að búa í húsunum, þannig draga úr rekstrarkostnaði ríkisins á fasteignunum og flýta fyrir endurkaupunum og þetta endurreisist. Þannig munum við gera þetta.
Það væri hægt að halda margar ræður í viðbót. Ég læt þetta duga í bili og vona að við getum farið að ræða alvöruplan hér frá ríkisstjórninni von bráðar.