tekjustofnar sveitarfélaga.
Forseti. Ég þakka fyrir að fá þetta mál hér til umræðu í 2. umræðu og hafði einhverjar vangaveltur. Mig langaði áðan að fara í andsvar við hv. framsögumann en náði því ekki vegna þess að ég þurfti að sinna öðrum skyldum hér í þinginu. En ég var að velta fyrir mér áhrifamatinu, þ.e. hvað þetta væru í rauninni margir sem féllu þarna undir vegna þess að eins og hér hefur komið skýrt fram þá vorum við með sérlög um Þórkötlu þannig að það íbúðarhúsnæði sem hefur verið selt fellur þá ekki undir þetta. Þá er þetta atvinnuhúsnæði og mögulega húsnæði sem er þá í eigu lögaðila og ég hefði gjarnan viljað geta lesið annaðhvort í greinargerð frumvarpsins sjálfs eða í nefndarálitinu aðeins út á þessa greiningu, hverjum við værum raunverulega að umbuna með þessu frumvarpi. Ég verð líka að viðurkenna að þegar maður fer í gegnum greinargerðina þá er þetta umræðan um jafnræði og eins og hefur komið ágætlega fram í ræðum þá er tekið fyrir gistiheimili og ef það var rétt þá var það einhver kærunefnd sem taldi ekki ójafnræði í því að miða þetta við þéttbýlið í Grindavík. En þetta er samt svolítið flókið mál og við megum ekki ganga um það með einhverri léttúð því þetta er auðvitað skattur og það er ofboðslega mikilvægt að jafnræðis sé gætt hvað það varðar. Þannig að ég segi það, virðulegur forseti, að ég sakna aðeins umfjöllunar um það í nefndarálitinu.
Að því sögðu þá hafa þeir sem hafa tjáð sig um þetta mál — sem ég tek reyndar eftir að eru eiginlega aðallega stjórnarandstæðingar, og 1. umræðu þá held ég að enginn stjórnarliði fyrir utan hv. þm. Guðbrand Einarsson hafi tjáð sig um þetta mál, þannig að ég veit svo sem ekki alveg hver afstaða stjórnarliða er til málsins sem slíks annað en að styðja það bara — flestir lýst því hér að við styðjum málið. Það var mjög gott á síðasta kjörtímabili hvað var mikil samstaða um Grindavíkurmálin en þá vorum við líka í ástandi neyðar og við þurftum að bregðast hratt og skjótt við. Sem betur fer áttum við einhver tæki og tól sem m.a. höfðu verið nýtt í Covid og sem voru svolítið hnoðuð saman að nýju fyrir Grindavík. Það var algjör samstaða um að við ætluðum að standa með Grindavík og standa með fólkinu sem býr í Grindavík og fyrirtækjunum sem eru í Grindavík.
Það sem ég sagði í 1. umræðu var svolítið að beina því til nefndarinnar, og ég sé enga umfjöllun að neinu viti um það í nefndarálitinu: Og hvað svo? Þetta er vissulega bara framlenging á þessum afmarkaða þætti málsins en það eru rosalega margir aðrir þættir sem skipta máli og falla að þessu og það sem ég var einmitt að lýsa hérna í fyrri umræðu er að þetta kann líka að vera flókið vegna þess að það kemur frá mörgum ráðherrum. Þetta mál er frá samgöngu- og sveitarstjórnarráðherra, þessi mál eiga líka undir fjármála- og efnahagsráðherra. Þau kunna að eiga að einhverju leyti undir menntamálaráðherra en þau eiga ekki síst líka undir dómsmálaráðherra varðandi almannavarnirnar. Ég sakna þess mjög að sjá planið sem var margumrætt í síðustu kosningabaráttu. Samfylkingin fór stóran um að það væri til plan, við vissum reyndar aldrei hvað var í þessu plani, það kom aldrei skýrt fram, en það var síendurtekið talað um að það væri til plan.
Grindavík og eldsumbrotin þar eru auðvitað eitt af þessum stóru áföllum sem við höfum orðið fyrir á síðustu árum og þurft að takast á við. Ég held að að mörgu leyti hafi okkur tekist ágætlega upp en það er svolítið skrýtið að við séum hér komin inn í um 100 daga af þessari ríkisstjórn og enn er ekkert plan um Grindavík. Það er ekki einu sinni nefnt á nafn að það sé raunverulega verið að vinna að einhverju plani. Ef maður fer í gegnum þessa þunnu fjármálaáætlun sem hér hefur verið borin á borð fyrir þingið þá er ekkert þar um framtíð Grindavíkur eða hvað eigi að gera varðandi Grindavík, virðulegur forseti. Ég fletti því upp hversu oft orðið Grindavík kemur fyrir á þessum 200 blaðsíðum. Það er níu sinnum og það er alltaf til að fjalla um aðgerðir fyrrverandi ríkisstjórnar varðandi Grindavík.
Virðulegur forseti. Mér þykir þetta mjög mikið áhyggjuefni. Hvað þetta mál varðar þá vissulega átta ég mig á því að hér er bara verið að tala um mjög afmarkaðan þátt en hættan er sú að ef við erum alltaf bara að framlengja og taka bara mjög afmarkaða þætti fyrir þá vantar þessa heildarsýn, vantar planið. Í þessu tilfelli hvað fasteignagjöldin varðar og það að heimila Grindavíkurbæ að falla frá því — gott og vel, ég ætla ekki að setja mig upp á móti því en það er takmörkuð framtíðarsýn í þessu máli. Það er alveg ljóst, enda bara hugsað til eins árs í senn og ég segi: Bíddu, hvað svo eftir níu mánuði eða ár? Verðum við þá á sama stað? Erum við þá aftur að fara að framlengja bráðabirgðaákvæðið? Ég sé alla vega enga umfjöllun um það hvernig við eigum einhvern veginn að komast út úr því ástandi hérna.
Ég hef líka velt því fyrir mér og kannski geta aðrir ræðumenn hér sem í sitja í hv. umhverfis- og samgöngunefnd komið inn á það hvort það hafi eitthvað verið fjallað um það hvaða áhrif uppkaupin höfðu til að mynda á fasteignamatið, sem er jú grunnurinn að fasteignagjöldunum. Við vitum að virði fasteigna í Grindavík er því miður mjög laskað núna og þeir samningar sem gerðir hafa verið hljóta að vera nánast eingöngu Þórkötlusamningarnir þar sem var verið að greiða hluta af brunabótamati og ekki voru allir Grindvíkingar sáttir við það. Þannig að ég velti því fyrir mér hvaða áhrif það hafi verið og hvort nefndin hafi skoðað þá þætti eitthvað.
Ég sé líka umfjöllun hér um vatns- og fráveitugjöldin og það sem hv. umhverfis- og samgöngunefnd tekur undir. Það var eitthvað á þá leið að nefndin tæki undir þessi sjónarmið sem höfðu komið frá Grindavíkurbæ og segir til að mynda í lokin hérna:
„Nefndin beinir því til ríkisstjórnarinnar að framangreind atriði er varða fjárhagsstöðu Grindavíkurbæjar verði skoðuð sérstaklega og að mynduð verði stefna sem fyrst um búsetu og atvinnurekstur í Grindavík til framtíðar.“
Þetta tek ég heils hugar undir. Þetta er ofboðslega mikilvægt. Ég vil hvetja nefndina og í 1. umræðu hvatti ég ráðherra, bæði þann ráðherra sem var að leggja þetta mál fram en ekki síður ríkisstjórnina alla, til að koma einmitt með þetta plan. Ég sakna þess að hafa ekki verið farin að sjá inn í það.
Ég ætlaði að nefna líka varðandi vatns- og fráveitugjöldin og þar sem nefndin tekur undir þessa ábendingu frá Grindavíkurbæ um það, þ.e. að Þórkatla ætti ekki að vera undanþegin því að greiða þessi gjöld og í rauninni er hægt að segja að uppi sé bara að einhverju leyti lagaleg óvissa. Ég alla vega skynja það þannig á þeim umsögnum sem um málið koma, bæði frá Grindavíkurbæ og hvort það var ekki sambandið eða fleiri umsagnaraðilar þarna sem taka undir það. Ég var nú, virðulegur forseti, aðeins að ræða þetta við formann hv. umhverfis- og samgöngunefndar hérna í hliðarsal því að ég furðaði mig á því þegar ég las þetta í gegn að það hefði ekki verið farið í þessa breytingu, bara hnykkt á því að segja bara: Nei, það er vilji löggjafans að vatns- og fráveitugjöldin séu ekki það sama og fasteignagjöld og þar af leiðandi sé Þórkatla ekki undanþegin slíku, vegna þess að hér er eins og nefndin sé að taka undir það og þá í rauninni óska eftir því að ríkisstjórnin geri eitthvað í því og ég velti fyrir mér hvort það sé ekki full ástæða til þess að hjálpa til við það. Ef það er raunveruleg sýn hv. umhverfis- og samgöngunefndar og vilji þingsins að vatns- og fráveitugjöld séu ekki hluti af fasteignagjöldum og Þórkatla eigi þar af leiðandi ekki að vera undanskilin því þá er alveg eins gott að bara klára það. Ég veit ekki hvort við séum bara að ýta undir þessa lagalegu óvissu með því að hér liggi fyrir þingskjöl þar sem er tekið undir þetta að einhverju leyti en það er ekki skorið úr um það.
Nú veit ég að málið fer aftur inn í hv. umhverfis- og samgöngunefnd og ég veit ekki hvort það verður rými til að ræða þetta eitthvað en að öllum kosti geri ég ráð fyrir því að nefndarmenn í umhverfis- og samgöngunefnd hafi við þessu einhver svör og hver séu þá næstu skrefin og vil þá bara minna á að okkur hefur oft tekist að gera ótrúlegustu hluti á stuttum tíma ef fyrir því er mikill vilji.
Virðulegur forseti. Ég ætla að fá að segja aftur að hluta til það sem ég tók fram í 1. umræðu því að eins og ég segi, ég alla vega get ekki séð mikið fjallað um það í nefndarálitinu, það er þessi framtíðarsýn. Ég held að ég hafi líka farið yfir það hér í fyrri umræðu, var að nefna ýmsa lagabálka er tengjast þessum eldsumbrotum og náttúruhamförum í Grindavík. Eitt af því var til að mynda lagabálkur er lýtur að því hvernig við gátum farið í uppbyggingu varnargarðanna; alveg stórkostleg mannvirki sem hafa varið Grindavík og ekki síst Svartsengi. Þetta mál afgreiddum við í fyrstu á einum degi hér í gegnum þingið. Ég var þá formaður allsherjar- og menntamálanefndar, virðulegur forseti, og ég verð að viðurkenna að ég hafði allan varann á, því að það er almennt ekki góður bragur á því að við séum að afgreiða slík mál með svo miklum hraða en um það var mikil samstaða. En sá lagabálkur um uppbyggingu varnargarðanna var t.d. að klippa á alveg fjöldann allan af lögum, skipulagslögum, um mat á umhverfisáhrifum, lögum um opinber útboð og ég veit ekki hvað og hvað. Þetta voru alvörulög og þetta skipti máli því að það þurfti að fara strax í varnargarðana.
Hæstv. þáverandi forsætisráðherra, Katrín Jakobsdóttir, flutti þetta mál og ég heyrði einmitt aðeins af því áðan í umræðunni að það var aðeins verið að velta fyrir sér hvar heildarmálaflokkurinn ætti heima, málefni Grindavíkur. Við virðumst, þrátt fyrir að vera svona lítil og fámenn, oft falla inn í einhver síló en þarna var t.d. tekin ákvörðun um það að forsætisráðherra mælti fyrir þessu í upphafi en svo færðist þetta yfir til dómsmálaráðherra því að þetta var almannavarnaþáttur, þannig að hv. þm. Guðrún Hafsteinsdóttir, sem þá var hæstv. dómsmálaráðherra, kom með þetta aftur inn í þingið nú síðast og óskaði þá eftir framlengingu um tvö ár á þennan lagabálk. Við breyttum því í hv. allsherjar- og menntamálanefnd og sögðum: Nei, það kemur ekki til greina, við skiljum að það þurfi að framlengja þetta, og framlengdum þetta um ár en við vorum með skýr skilaboð inn í ráðuneytið að nú þyrfti að fara að huga til framtíðar og það þyrfti að koma einhver meiri framtíðarsýn á það hvernig eigi að vinna að þessum mikilvægu verkefnum. Ég segi þetta líka vegna þess að ég vil hvetja stjórnarliða hérna áfram í því að það er ekki þannig að það komi bara mál frá ríkisstjórninni sem þau þó styðja og þau séu stimpluð. Við í þinginu eigum að horfa gagnrýnum augum á allt sem hingað kemur og það er alls ekki gefið að málin fari í gegn óbreytt. Það var bara mjög oft á síðustu kjörtímabilum sem ég sat sem við gerðum töluverðar breytingar á málum, jafnvel þó að þau væru að koma frá okkar ráðherra.
Þetta á að vera brýning til hv. þingmanna sem styðja núverandi ríkisstjórn til þess að hér í þinginu eigum við að vanda til verka. Það er bara mjög eðlilegt að þingið geri breytingar og jafnvel eru hæstv. ráðherrar ekkert alltaf rosalega ánægðir með það og það þarf stundum bara að hafa það. Það er nákvæmlega þannig sem við unnum á síðasta kjörtímabili. Með því er ég náttúrlega ekki að segja að þetta frumvarp hér eigi ekki að afgreiðast en ég verð að segja að kannski megi bara alveg gera enn frekari breytingar á og í það minnsta — ég átta mig á því að við erum hér á síðustu metrum fyrir páska þannig að væntanlega gerist ekki mikið í því, en hvort það hefði verið hægt að hnýta hér um og hnykkja á þessu með veitugjöldin, að þau væru ekki hluti af fasteignagjöldunum, ég hefði gjarnan viljað að það færi mikil vinna í gang til að skoða þann möguleika.
Að því sögðu, virðulegur forseti, vil ég bara aftur brýna okkur áfram í því að það þarf að verða til plan. Það var mjög gott að við værum sammála um málin hér á síðasta kjörtímabili að bregðast við neyðarástandi en það er ekki hægt að koma með hvert og eitt neyðarbráðabirgðaákvæði og bara framlengja. Við þurfum að fá meiri framtíðarsýn, bæði þarf ríkissjóður það og við sem hér sitjum en auðvitað fyrst og fremst samfélagið í Grindavík. Þau eiga rétt á því að við mótum hér plan í samstarfi við þau, trúverðuga framtíðarsýn um það hvernig byggð og atvinnulíf geti þróast í Grindavík.