156. löggjafarþing — 28. fundur,  8. apr. 2025.

tekjustofnar sveitarfélaga.

98. mál
[18:19]
Horfa

Karl Gauti Hjaltason (M):

Frú forseti. Þetta eru búnar að vera athyglisverðar umræður í dag um framtíð Grindavíkur og sitt sýnist hverjum. Aðallega hef ég orðið var við það að fólk er að hvetja til þess að stjórnvöld og þingið hafi skýra sýn til framtíðar í málefnum Grindavíkur. Ég gleymdi í minni fyrri ræðu einu atriði og ætla að nefna það hér í upphafi áður en ég fer yfir þetta í heild sinni. Það var varðandi þessa kröfu íbúa í Grindavík sem hafa afsalað eignum sínum til Þórkötlu og hefur verið mjög hávær krafa um að þessir fyrrum eigendur fái auknar heimildir til að dvelja í þessum eignum. Ég held, frú forseti, að það sé allra hagur, ekki bara þessara aðila heldur líka yfirvalda og eigenda húsanna, ríkisins og Þórkötlu, að gefa þessa heimild og auka hana og leyfa, á meðan ekki er sérstakt hættuástand, dvöl, einnig á nóttunni, í þessum fasteignum og hugsanlega þá gegn því að viðkomandi greiði einhvers konar gjald fyrir það, greiði hita eða rafmagn eða eitthvað slíkt. Það sem vinnst með þessu er auðvitað umhyggjan fyrir eignunum, þ.e. viðkomandi gæti hugsanlega dyttað að, komið í veg fyrir tjón á eigninni og haft ákveðið eftirlit og yfirumsjón með henni. Þetta myndi einnig, frú forseti, verða til þess að auka líkurnar á því að þetta fólk sem myndi nýta eignirnar með þessum hætti geti snúið til baka og fest kaup á þessum eignum aftur þegar ástandið myndi lagast, þegar hættuástandið væri yfirstaðið. Ég tel að það sé gott fyrir alla aðila að leyfa þetta í miklu meiri mæli en nú er.

Ég ætlaði einnig að tala almennt um viðbrögð stjórnvalda. Ég tel mjög mikilvægt að stjórnvöld gæti vel að því til hvaða viðbragða þau eru að taka, hvernig viðbrögðin eru, hvaða áætlanir eru gerðar, hvaða aðgerða þau grípa til vegna þess að hafandi búið í Vestmannaeyjum þá er ég fullviss um að það verða ekki mörg ár þar til að þessir atburðir allir og viðbrögðin sérstaklega verða rýnd alveg ofan í kjölinn, eftir 10 eða 20 eða 30 ár verða þessi viðbrögð rýnd ofan í kjölinn. Þá mun sérstaklega verða rýnt viðbragð stjórnvalda gagnvart félagslega þættinum. Hvort hús hafi verið keypt eða ekki er kannski ekki það sem menn munu deila á eftir 30 eða 40 ár en menn munu horfa á viðbrögð stjórnvalda við því félagslega áfalli sem bæjarbúar hafa þurft að þola og hvernig stjórnvöld komu þar að, hvernig þau studdu við fólkið og leiddu það áfram út úr þessum erfiðleikum sem Grindvíkingar sannarlega hafa mátt þola og halda áfram að þola á næstu misserum.

Ég tel að stjórnvöld þurfi virkilega að gæta að því hvaða skref þau eru að taka og gera það fyrr en síðar. Það er ekki nóg að gera þetta eftir eitt ár eða tvö ár heldur núna. Núna eru þessar kynslóðir að vaxa upp sem bjuggu í Grindavík og búa núna víða um landið og eru að reyna að tengja sig annaðhvort á nýjan hátt eða þá í Grindavík. Það er mikilvægt hvaða skref stjórnvöld taka einmitt núna, þannig að ég vil bara benda á að stjórnvöld verða að hafa skýra sýn á það til hvaða viðbragða þau ætla að grípa. Þess vegna er þessi umræða hér í dag rosalega mikilvæg með þátttöku mjög margra þingmanna sem hafa velt þessu á alla kanta og þroskað þessa umræðu. Það er einmitt mjög mikilvægt sem leiðarljós til framtíðar og til ákvarðanatöku, til hvaða ráða menn ætla að grípa.

Ég ætla einnig að nefna fleira. Ég ætla að nefna reynsluna sem hefur verið að byggjast upp í gegnum þessar hamfarir á síðustu árum. Það er mikil reynsla og þekking sem hefur byggst upp og viðbragðsaðilar á Íslandi eru öllu vanir. Það er enginn vafi á því þó að þeir hafi kannski aldrei tekist á við atburð eins og þennan og alls ekki svona langvarandi sem beinist að byggð. Almannavarnir hafa verið að þjálfa sín viðbrögð og að sjálfsögðu okkar góðu björgunarsveitir, Landhelgisgæslan, lögreglan og ekki síst vísindamenn, þótt ég viti það og við öll að jarðvísindi eru nú ekki kannski algild sannindi. Við höfum nú orðið vitni að því að þeir eru ekki handhafar sannleikans varðandi það hvað mun gerast næst neðan jarðar en þeir eru að eflast, þeir eru að afla sér þekkingar og þetta mun kenna okkur í framtíðinni.

Það er auðvitað mjög mikilvægt og ég veit það vegna minna fyrri starfa að almannavörnum er mjög umhugað um að reyna að læra af þessu og uppfæra sínar áætlanir og aðferðafræði í gegnum þessa atburði þannig að þetta mun skila okkur miklum ávinningi þegar við tökumst á við hamfarir framtíðarinnar og áframhaldandi hamfarir. Þá vil ég kannski líka benda á eitt í þessu sambandi sem kemur upp í hugann, af því að fyrri ræðumenn hafa verið að tala um fyrri hamfarir eins og móðuharðindin 1783–1784. Ég spyr bara, frú forseti: Eru stjórnvöld með einhvers konar viðbragðsáætlanir eða hugmyndir um viðbrögð við því ef slíkt myndi gerast? Nú veit ég að menn hafa verið að nefna flóð, vatnsflóð eða hraunflóð, á okkar helstu virkjunarsvæðum, ég hef heyrt af því, en eru menn viðbúnir t.d. þessum glufum sem fylgja og fylgdu gosinu þarna fyrir 240 árum síðan? Eru menn viðbúnir slíku? Ég man eftir því í Holuhraunsgosinu að það var eiturmóða sem fauk hérna fram og til baka í kringum landið en náði kannski aldrei í miklu magni inn í þéttbýlið. En ef þetta yrði nú á stærri skala eins og þarna fyrir 250 árum, eru menn með einhverja viðbragðsáætlun við því?

Það er auðvitað að mörgu að huga þegar talað er um almannavarnir. Það er svo margt sem getur gerst. Við höfum auðvitað upplifað allar tegundir og týpur af hörmungum; eldgos, snjóflóð, aurskriður, jarðskjálfta, sjávarflóð og veður, eða öllu frekar óveður, sí og æ. Það er ekki bara það að viðbrögðin verði rýnd heldur munum við læra af þessu. En ég tel samt að sumt af því sem er að gerast meðal Grindvíkinga — það þarf að taka ákvarðanir núna og ekki bíða bara og bíða þangað til vandamálið leysist af sjálfu sér því að þetta verður gagnrýnt í framtíðinni og það er mikilvægt að taka réttar ákvarðanir og taka þær núna en ekki síðar.

Annað sem ég vil koma hér að að lokum er samstaðan. Ég dáist auðvitað að því hversu mikil samstaða er með Grindvíkingum hér í þessum sal. Hún er órofa. Menn greinir einungis um á um útfærslur og hversu langt menn eigi að ganga o.s.frv. Það eru allir á einu máli um það að standa með Grindvíkingum. Ég er bara ánægður og stoltur að fá að heyra þetta og taka þátt í þessu. Þetta er 1%, Grindvíkingar voru 1% af þjóðinni og ég endurtek það sem ég sagði áðan: Við eigum standa með þeim, við hljótum að geta bjargað einu prósenti af þjóðinni sómasamlega.