tekjustofnar sveitarfélaga.
Herra forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir ræðuna vegna þess að hann er þingmaður Suðurkjördæmis en ég veit jafnframt að hann þekkir mjög vel til á þessum slóðum og líka í Vestmannaeyjum. Hv. þingmaður kom aðeins inn á það hér áðan varðandi einhvers konar úttekt sem þyrfti að gera á viðbrögðum okkar og horfa til þess hvernig fólkinu líður.
Ég sat í velferðarnefnd á síðasta kjörtímabili þegar við vorum að fjalla um þessi mál og mig langaði að nefna það hér að þáverandi hv. þm. Ásmundur Friðriksson sat þar með mér í nefndinni og hafandi líka alist upp í Vestmannaeyjum og þekkjandi vel það áfall var honum mjög umhugað um að við þyrftum að huga sérstaklega að andlega þættinum. Ég minnist þess að hann ræddi hér einmitt sérstaklega áhrif á konur. Hann hafði séð það í sinni æsku hvað margar mæður lögðu mikið á sig þegar þurfti að rýma Vestmannaeyjar og hve mikil áhrif það hafði til langs tíma. Við reyndum að ræða þetta svolítið í velferðarnefnd og kalla til gesti og vildum einmitt vakta þetta. Ég hygg að ýmislegt hafi verið gert hvað það varðar til að reyna að halda utan um Grindvíkinga okkar, ef ég leyfi mér að orða það með þeim hætti, en ljóst er að álagið á þessu fólki var auðvitað gígantískt. Ég minnist þess að hafa farið með þingflokki mínum og hitt fólk og heyrt sögurnar af sérstaklega konum sem voru keyrandi hér bæjarhornanna á milli til að fara með börn í skóla og íþróttir, leikfimi, þetta og hitt og sinna öllu ofan á fjárhagslegar áhyggjur. Mig langaði að spyrja hv. þingmann aðeins út í hvað hann telur að við getum mögulega gert betur núna og meira því að á þeim tíma heyrði maður líka Grindvíkinga segja: Heyrðu, fyrst þurfum við auðvitað bara fá úr því skorið hvað á að gera við húsin okkar og hvar við eigum að fara að búa, svo getum við hugað að næstu þáttum. Ef hv. þingmaður, sem hefur mikla innsýn og reynslu, gæti aðeins komið inn á það.