tekjustofnar sveitarfélaga.
Frú forseti. Ég þakka hv. þm. Bryndísi Haraldsdóttur fyrir þessa spurningu. Í minni ræðu var ég örlítið að koma inn á það sem ég þóttist hafa orðið áskynja í Vestmannaeyjum. Ég var ekki staddur þarna 1973, ég var reyndar staddur hérna í bænum. Ég man vel eftir þeirri nótt vegna þess að ég vaknaði hálftvö, bara örstuttu eftir að gosið hófst. Þá var hringt og verið að kalla út bróður minn sem var skipverji á varðskipi. Atgangurinn var svo mikill að það vantaði fólk. Það náðist ekki í alla og þá var annar bróðir minn, sem hafði nú aldrei farið á sjó, líka kallaður út til að fylla upp í mannskap á öðru varðskipi. Þeir fóru til Eyja þarna þessa nótt og annað varðskipið var held ég bara allt gosið að flytja menn þarna á milli Eyja og út í, hvort það var Gullfoss, ég er nú ekki alveg viss, sem mennirnir dvöldu í þá, alltsvo hermenn af Keflavíkurflugvelli. Ég var bara að reyna að setja mig í spor fólksins í Vestmannaeyjum. Auðvitað varð ég var við það í Eyjum að þar hafði hver einasti maður sína sýn á þessa atburði og hafði sína sögu að segja. Það er auðvitað mikilvægt að fólk fái að ræða þetta. Ég er enginn sérfræðingur í þessum málum og ég veit ekki hvenær tíminn væri réttur en það þarf auðvitað að sinna þeim þætti líka. Ég veit það og heyrði það á hæstv. forsætisráðherra að það er ætlunin að vinna vel í þessum sálfræðilega þætti. Ég kem kannski frekar að því í seinna andsvari.