156. löggjafarþing — 28. fundur,  8. apr. 2025.

tekjustofnar sveitarfélaga.

98. mál
[18:34]
Horfa

Bryndís Haraldsdóttir (S) (andsvar):

Frú forseti. Ég þakka hv. þingmanni svarið. Ég er nú fædd eftir gos þannig að ég man ekki eftir þessum atburðum en man eftir að hafa lesið um þá. Upplifun mín var sú að við hefðum tekið alveg ofboðslega vel á móti Eyjamönnum og hugað vel að Eyjamönnum eftir gosið. En það vildi svo til að ég var stödd í Vestmannaeyjum þegar Grindavík var rýmd og það var eiginlega svona eins og það væri verið að endurupplifa eitthvert áfall í samfélaginu. Ég átti laugardagsfund þar með Sjálfstæðismönnum og það voru auðvitað allir í áfalli því að allir voru endurupplifa eitthvað. Það sem sló mig þegar ég fór aðeins að ganga um bæinn og sitja á kaffihúsi og fara í verslanir og heyra í fólki var að það var auðvitað alls staðar verið að tala um þetta. Það voru konur sem þá höfðu verið börn í Vestmannaeyjum. Þær höfðu ekki þessa upplifun. Það er eiginlega frekar nýlegt að Eyjamenn hafi farið að tala um tilfinningar sínar í tengslum við það að þurfa að yfirgefa heimili sín (Forseti hringir.) og tilfinningin var svolítið: Heyrðu, ég vona nú að þau taki betur utan um börnin heldur en tekið var utan um okkur á sínum tíma. Að börnum (Forseti hringir.) hafi fundist þau vera svona einhvern veginn út undan (Forseti hringir.) og vera einhvers konar byrði í samfélaginu, þ.e. Eyjamenn á þessum tíma. (Forseti hringir.) Ég vona svo sannarlega að okkur hafi tekist betur upp núna og muni takast betur upp með Grindvíkinga. (Forseti hringir.) Að allir upplifi það þannig að auðvitað stöndum við með Grindvíkingum og Grindavík.

(Forseti (EÁs): Ég minni á að ræðutími er ein mínúta í síðari umferð.)