156. löggjafarþing — 28. fundur,  8. apr. 2025.

tekjustofnar sveitarfélaga.

98. mál
[18:36]
Horfa

Karl Gauti Hjaltason (M) (andsvar):

Frú forseti. Ég þakka enn og aftur fyrir þessi andsvör. Já, ég varð líka hissa á því þegar byrjaði að gjósa á Reykjanesinu og líka reyndar uppi á Fimmvörðuhálsi, þá var ég í Vestmannaeyjum og þeir höfðu eiginlega andstyggð á því og skildu ekki hvað fólk hefði að gera með að vera að vaða þarna uppeftir til að horfa á þetta. Þeir vildu helst ekkert af þessu vita þannig að þetta djúpt í sálinni á þeim sem upplifðu þetta. Ég er bara að reyna að benda á það að það er mjög mikilvægt að við áttum okkur á þessu, að við erum að upplifa og Grindvíkingar eru að upplifa atburði sem munu fylgja þeim alla þeirra lífstíð. Þess vegna er svo mikilvægt að stjórnvöld fari þar sem þau geta út í aðgerðir til að styðja við Grindvíkinga í framhaldinu á næstu árum.