tekjustofnar sveitarfélaga.
Virðulegi forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir góða yfirferð hér í mikilvægu máli og langaði að koma og spyrja hann aðeins út frá hans reynslu og þekkingu, bæði sem íbúa í Vestmannaeyjum og svo starfsmanns almannavarna og yfirmanns almannavarna þar. Aðkoma almannavarna í svona stórum atburði — ég held að það sé ekkert umdeilt að almannavarnir eiga að koma að þegar svona stórir atburðir verða og stýra aðgerðum og hafa gert það gríðarlega vel í Grindavík, sérstaklega að undirbúa rýmingu og gera rýmingaráætlanir með almannavarnanefnd Grindavíkur. Svo eru það allir varnargarðarnir og að verja innviðina eins og virkjunina og annað slíkt. En hvað á það ástand að vara lengi? Hvernig metum við hættuna og hver á svo að taka við ábyrgðinni? Eru það heimamenn sjálfir og fólkið sjálft og stjórnvöld eða er það almannavarna enn þá að hafa vit fyrir fólki þar sem eru komnir varnargarðar, mikil reynsla af rýmingu, ekki bara rýmingaráætlun heldur er búið að prófa það núna í níu skipti? Hvenær eiga stjórnvöld, fyrst almannavarnir og svo stjórnvöld almennt, að sleppa takinu og veita frekar stuðning heldur en að vera að halda aftur af fólkinu? Er það ekki stór þáttur í því sem hv. þm. Karl Gauti Hjaltason var að ræða hér áðan við hv. þm. Bryndísi Haraldsdóttur um sálfræðilega úrvinnslu, að fá að byggja upp samfélag sitt aftur, sjá það byggjast upp? Er það ekki stór partur af eftirvinnslu atburðarins?