156. löggjafarþing — 28. fundur,  8. apr. 2025.

tekjustofnar sveitarfélaga.

98. mál
[18:42]
Horfa

Vilhjálmur Árnason (S) (andsvar):

Virðulegi forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir gott svar og tek undir með honum. Hann kom akkúrat inn á kjarna málsins sem ég var að reyna að leiða inn með mínu andsvari. Þá þurfum við einmitt að velta fyrir okkur að nú er langvarandi atburður, hvort við þurfum þá ekki að endurskilgreina atburðinn og áhrifasvæði atburðarins eftir því sem við lærum á hann og bregðumst við þannig að við séum svolítið að læra á atburðinn, læra á náttúruna og við erum búin að gera einhverjar ráðstafanir. Hvernig tökum við það inn í áhættumatið? Og svo það sem ég endaði á áðan og ætlaði að koma aftur inn á: Hvernig við bregðumst við þessu öllu og hvernig við sleppum svolítið tökunum af kannski afmörkuðu svæði eða drögum úr hættumatinu upp á endurheimt hins sálfræðilega eða andlega styrks samfélagsins.