156. löggjafarþing — 28. fundur,  8. apr. 2025.

tekjustofnar sveitarfélaga.

98. mál
[18:43]
Horfa

Karl Gauti Hjaltason (M) (andsvar):

Frú forseti. Já, við tökum þetta áfram. Kannski er bara tími þessa viðbragðskerfis almannavarna og þess sem hefur með Grindavíkuratburðinn að gera hvað það varðar, kannski má alveg ræða það að sá tími sé bara liðinn eða sé að líða og hafi bara einhvern endapunkt fljótlega. Þetta getur kannski ekki gengið svona í mörg ár. En það þarf auðvitað að vera einhvers konar stjórnvald meðan atburðirnir eru, það þarf einhvers konar stjórnvald eða einhver stjórn að vera á því að halda áfram að byggja varnargarða ef það kemur upp nýtt gos á nýjum stað og verja innviði, ákveða það hvort íbúarnir komi inn og hversu lengi og mikið. Ég held, og tek undir með hv. þingmanni, að það sé algjör forsenda til að minnka sálfræðilegt áfall að leyfa fólki að fá úrlausn, að fara aftur til baka eða ekki, að það komi einhver endanleg úrlausn mála.