tekjustofnar sveitarfélaga.
Frú forseti. Þetta er alla vega áhugaverð umræða og ég þakka hv. þm. Karli Gauta Hjaltasyni fyrir fína ræðu. Þeir hv. þingmenn sem hafa komið í andsvör á undan, ég er eiginlega með nákvæmlega sama hlutinn, þ.e. fyrirsjáanleikann sem hv. þingmaður kom inn á í sínu máli, sem er gríðarlega mikilvægur: Hvað tekur við og hvernig menn sjá það að komast út úr áfallinu eins og við erum að fást við, sem snýr að Grindavík og Reykjaneseldunum.
Það er áhugavert að ég var á samfélagsmiðlum rétt að skoða t.d. hvað væri að gerast í samfélaginu okkar. Í Þingeyjarsveit, í Ýdölum á morgun kl. 5 er stór fundur þar sem er kynning á flóðahættu vegna Bárðarbungu, flóðahættu í Skjálfanda fyrir þá sveit. Það er mikil umræða bara vítt og breitt um þessi mál sem skipta okkur öll svo gríðarlega miklu máli. Ég vildi kannski rétt koma inn á það sem hv. þm. Karl Gauti Hjaltason kom inn á, þ.e. hvernig verður rýnt í þessi mál síðar. Ég þekki ágætlega í gegnum fjölskyldubönd einstaklinga sem bjuggu í Vestmannaeyjum þegar gaus, einstaklinga sem fóru þangað aldrei aftur. Þetta er nefnilega ótrúlega áhugavert, þessi félagslegi þáttur, mannlegi þátturinn þegar fólk lendir í svona gríðarlegum áföllum. Þess vegna er það mjög áhugavert að taka þetta út og það þarf að fylgjast virkilega vel með þessum stóra hópi, 1% samfélags okkar sem lendir í þessu í Grindavík, það er þessi andlegir þáttur sem er svo gríðarlega stór og mikill.
Svo langaði mig rétt að koma í seinna andsvari inn á stór gos eins og Holuhraunsgosið og áhrif á loftmengun.