tekjustofnar sveitarfélaga.
Frú forseti. Við höfum nefnilega upplifað stór eldgos á undanförnum árum. Eyjafjallajökull, gríðarleg loftmengun og hafði mikil áhrif á sveitirnar í kring. En svo vildi ég benda á Holuhraunsgosið 2014 sem varði í sex mánuði og þar var gríðarleg loftmengun. Öðru hvoru þá náði hún niður í Eyjafjörðinn alveg yfir Akureyri og það var nú þannig suma daga að slökkva þurfti á loftræstikerfinu á sjúkrahúsinu út af því hversu gríðarleg loftmengunin var utan dyra og hátt gildi brennisteinsdíoxíðs í því gosi sem var langt yfir heilsufarsmörkum. Þannig að það er víða. Við þekkjum það líka með Öskjugosið og annað á 19. öld. Við erum með fullt af svona gosum þar sem er gríðarleg loftmengun og getur haft gríðarleg áhrif á dýr og menn í þessu samhengi. Þannig að það er að mörgu að huga í þessu.