tekjustofnar sveitarfélaga.
Virðulegur forseti. Ég vil byrja á því áður en ég fer beint inn í efni málsins að leiðrétta ákveðinn hlut í nefndarálitinu. Með leyfi forseta stendur hér:
„Að framangreindu virtu leggur nefndin til að frumvarpið verði samþykkt óbreytt. Jón Garðar Helgason var fjarverandi við afgreiðslu málsins.“
Afi minn heitinn hét reyndar því góða nafni Jón Helgason en það heiti ég ekki og óska því eftir hér með að þessu verði breytt, virðulegur forseti. (JGunn: Hann var fjarverandi.) — Jú, vissulega rétt hjá hv. þm. Jóni Gunnarssyni að Jón Helgason var fjarverandi líka. [Hlátur í þingsal.]
Virðulegur forseti. Ég vil byrja á því að taka undir ræðu hv. þm. Ólafs Adolfssonar hérna áðan þar sem hann var að fara yfir nefndarálitið. Það er gríðarlega mikilvægt að við klárum þetta mikilvæga mál fyrir páska en ég held að við verðum að gera okkur grein fyrir því þegar við horfum á þetta í rauninni risavaxna mál sem blasir við okkur, sem er framtíð og uppbygging Grindavíkur, að þetta er mál sem mun taka ár og jafnvel áratugi, að endurreisa samfélagið í Grindavík. Kostnaðurinn í kringum aðgerðirnar í Grindavík er í kringum 100 milljarðar og það sér enginn á eftir þeim peningum sem hefur verið varið í þær aðgerðir sem hefur þurft að fara í varðandi Grindavík. En ég vil taka undir með hv. þm. Karli Gauta Hjaltasyni sem kom hér upp áðan og sagði í ræðu sinni að við yrðum ekki dæmd af því í framtíðinni, við þingmenn, stjórnvöld, hvort einhver keypti húsið sitt á þessu verði eða hinu verðinu eða hvernig við afgreiddum ákveðin mál. Við verðum dæmd af því hvernig okkur tókst til við að koma samfélaginu aftur á lappirnar og hvernig okkur tókst að koma og halda utan um samfélagið í Grindavík og byggja það upp að nýju. Að hjálpa Grindvíkingum að komast aftur á lappirnar og byggja upp sinn heimabæ.
Fyrir nokkrum vikum síðan var ég ásamt nokkrum þingmönnum á morgunfundi í Kvikunni í Grindavík. Það var um margt mjög merkilegur fundur. Þar heyrðum við mjög skýrt vilja heimamanna. En ég man sérstaklega eftir því að almannavarnaflauturnar fóru af stað meðan á fundinum stóð. Það var var mjög dramatískt að sitja á fund í Grindavík með hópi fólks. Þarna voru ábyggilega 80–100 manns og flauturnar fara af stað. Sem betur fer var þetta nú bara æfing en það fór nú um mann smá hrollur af því að eins og við vitum þá hafði verið búið að spá jarðhræringum í Grindavík í þó nokkurn tíma þannig að það var svo sem ekkert útilokað að jarðhræringar væru byrjaðir að nýju. En það var mjög áhrifamikið að sitja akkúrat þarna í þessu samfélagi þegar almannavarnaflauturnar fóru af stað.
Það er nefnilega merkilegt og ég hafði ekki áttað mig á því að í Grindavík eru að vinna á hverjum tíma, á hverjum degi, a.m.k. virka daga í 40 fyrirtækjum sem eru í Grindavík 700–1.000 manns, á hverjum degi. Við gleymum því nefnilega að við erum að tala um samfélag sem er komið í ákveðna drift, sem er komið aftur á skrið. Atvinnulífið er komið á skrið, það er í ákveðnum blóma og þar eru svona 700–1.000 manns. En vissulega er ég ekki að tala um að atvinnulífið sé með þeim hætti eins og það var fyrir gosið. En við megum ekki gleyma því að það er orðin heilmikil starfsemi í Grindavík nú þegar og í um 40 fyrirtækjum. Það eru um 1.200–1.400 Grindvíkingar sem eiga lögheimili enn þá í Grindavík. Þrátt fyrir að einungis um 100 Grindvíkingar sofi þar alla jafna eða gisti í Grindavík eru um 1.200–1.400 Grindvíkingar sem eiga þar lögheimili, sem segir okkur líka ákveðna sögu. Það segir okkur að það eru Grindvíkingar sem eru að senda þau skilaboð að þeir ætli að koma aftur heim. Þeir ætli að taka þátt í því að byggja upp bæinn sinn, samfélagið sitt, aftur. Ég held að akkúrat í þeim efnum sé svo mikilvægt að við hlustum á Grindvíkinga, að við hlustum á vilja þeirra og hvernig þeir sjá fyrir sér að við byggjum upp framtíð samfélagsins. Ég held að það sé alveg gríðarlega mikilvægt fyrir okkur. Þess vegna fannst mér það að mörgu leyti sorglegt fyrst það kom fram á fundi okkar þingmanna sem vorum á fundinum í Kviku núna í janúar eða byrjun febrúar skýr vilji og ákall til okkar um að breyta ekki Grindavíkurnefndinni, að Grindavíkurnefndin eins og hún var saman sett fengi að halda áfram störfum til þess að hafa þessa samtengingu og bara halda áfram þeirri þekkingu og þeim samskiptum sem áður var búið að myndast í nefndinni, að það yrði einhver samfella í störfum nefndarinnar. En því miður var ekki hlustað á þær raddir og ég verð að segja að mér þykir það miður af því að það var sterkt ákall úr samfélaginu í Grindavík að það yrði samfella í störfum nefndarinnar og menn færu ekki í að blanda pólitík í það hvernig nefndin væri skipuð heldur að menn horfðu til þeirra verka sem nefndin hefði unnið. Hún var búin að mynda traust og trúnað og gott samstarf og samvinnu við heimamenn og þeir vildu halda því starfi áfram. Þeir gáfu lítið fyrir rök stjórnvalda sem sögðu að það þyrfti að koma að breyta nefndinni af því að það þyrfti meiri greiningarvinnu. Þetta var það sem maður heyrði mjög skýrt frá heimamönnum og ekki bara á þessum fundi, ég held að við, allir hv. þingmenn, hafi fengið þessi skilaboð með einum eða öðrum hætti frá Grindvíkingum.
Sveitarsjóður Grindavíkur stendur vel. Núna um áramótin voru um 3,3 milljarðar til í sveitarsjóði. Það er ánægjulegt að sjá hvað Grindavík hefur verið, þrátt fyrir það sem hún var fyrir þessi miklu áföll, gríðarlega vel rekið og sterkt sveitarfélag sem var skuldlaust. En ég hef smá áhyggjur af því að ef við horfum til framtíðar og horfum til þess sem Grindvíkingar vilja sjá, þeir vilja sjá samfélagið sitt byggjast upp á nýtt, þá þurfum við sterkan og öflugan sveitarsjóð. Þannig að ég legg líka til að við búum til einhvers konar reiknireglu eða miðum við að það sé til einhver ákveðinn peningur í sveitarsjóði sem hægt og bítandi verði gengið á, af því að þegar uppbyggingarferlið hefst þá viljum við hafa sterkan sveitarsjóð Grindavíkurbæjar til að takast á við þá innviðauppbyggingu sem þörf er á í samfélaginu. Ég held að við þingheimur ættum að hafa það bak við eyrað þegar við tökum ákvarðanir varðandi Grindavík að ekki einblína of mikið á stöðu sveitarsjóðs og að hann geti mögulega tekið á sig eitthvað meira. Í rauninni verðum við að horfa til þess að sveitarsjóður geti jafnvel stækkað og vaxið, hafi meira tekjuflæði til þess að vera fjárhagslega burðugur til að takast á við þá miklu innviðauppbyggingu sem fram undan er í Grindavík.
Við Íslendingar þekkjum áföll. Við þekkjum áföll ýmiss konar mjög vel. Nú höfum við verið að tala um áföll sem hafa dunið á samfélaginu í Grindavík í kringum jarðelda og þekkjum það náttúrlega víðar bara í Íslandssögunni. Það sem næst er í tíma er gosið í Vestmannaeyjum. En það hafa líka verið snjóflóð og nú erum við farin að sjá aurflóð í mun meiri mæli. Og svo megum við ekki gleyma því að það hefur verið mikil blóðtaka í gegnum tíðina, áður fyrr. Sem betur fer er það nú ekki algengt núna en sjóslys gátu líka verið stór áföll fyrir ákveðin samfélög þegar ákveðin veður þurrkuðu nánast út heilu samfélögin. Það er sem betur fer liðin tíð. En aðrar náttúruvár eins og jarðeldar, snjóflóð og aurflóð hafa í rauninni hert okkur Íslendinga. Það er aðdáunarvert hvernig við sem þjóð höfum tekist á við þær miklu náttúruhamfarir sem á okkur hafa dunið og í þeim samfélögum þar sem þær hafa komið niður. Þar er í rauninni ekki síst samheldni og samstöðu samfélaganna á hverjum tíma fyrir að þakka og þá ekki síst núna samheldni og samstöðu Grindvíkinga í þeim miklu áskorunum sem við þeim blasa. Það eru aðdáunarvert að horfa á hvernig Grindvíkingar hafa staðið saman í því að berjast fyrir sínu samfélagi og uppbyggingu þess í framtíðinni. En eins og fram hefur komið hér, virðulegur forseti, í mörgum ræðum þá er það í rauninni mannlegi þátturinn, þ.e. að halda utan um fólkið sem verður fyrir þessum gríðarlega miklu áföllum. Maður þekkir það úr frásögnum, bæði heimildarmyndum og samtölum, þar sem svipaðar náttúruhamfarir hafa dunið yfir, að á þeim tíma skorti mikið á þetta utanumhald um fólkið. Það er áfallahjálp og síðan er það þessi áframhaldandi stuðningur. Íslendingar höfðu svolítið þann háttinn á að bíta á jaxlinn og gráta í hljóði og svo áfram gakk en þannig ætlum við ekki að hafa það í framtíðinni og höfum það ekki þannig í dag.
Ég held að það sem muni ráða framtíð Grindavíkur, eins og ég kom inn á áðan, sé ekki síst hvernig við höldum utan um Grindvíkinga og pössum upp á andlega heilsu þeirra og hvernig þeir komast í gegnum þessi miklu áföll. Ég held að maður geti varla sett sig í þessi spor almennilega. En maður verður að reyna að setja sig í þau spor að reyna að skilja þá og reyna þá að átta sig á því hvernig best er að bregðast við.
En í öllum þessum áföllum þá höfum við líka sýnt það, Íslendingar, eins og við höfum sýnt núna með varnarmannvirkin á Reykjanesi, sem eru í rauninni alveg ótrúlegar framkvæmdir, varnargarðar sem eru orðnir hátt á annan tug metra að hæð og hafa staðið og varið mikilvæga innviði, ekki bara byggðina í Grindavík heldur ekki síður og alveg eins orkumannvirkin, Svartsengi, við höfum náð að gera þessi samfélög, eins og við höfum sýnt á Reykjanesi og eins og við sjáum víðs vegar um land, ofanflóðamannvirkin þar sem við erum búin að eyða í gegnum tíðina núna á undanförnum árum og áratugum tugum milljarða í að verja byggð fyrir t.d. snjóflóðum. Núna eru aðgerðir í gangi á Seyðisfirði sem eiga að verja byggðina bæði fyrir snjóflóðum og aurflóðum þannig að við höfum staðið okkur ótrúlega vel, Íslendingar, í að bregðast við og sýna árvekni og þor til þess að verja byggðirnar okkar og við verðum að halda því áfram.
Virðulegur forseti. Að lokum segi ég: Ég held að í allri þessari umræðu um Grindavík — og ef ég, sem Jón Garðar í nefndaráliti en Jens Garðar hér, hefði verið á nefndarfundinum þá hefði ég að sjálfsögðu skrifað undir og tekið undir þetta nefndarálit. Þetta er mikið og þarft mál fyrir Grindvíkinga og það þarf að klárast fyrir páska. En ég held að númer eitt, tvö og þrjú fyrir okkur þingheim sé að hlusta á vilja heimamanna. Við eigum að hlusta á Grindvíkinga og við eigum að fara að færa þeim meiri völd í hendurnar til þess að ráða örlögum sínum sjálfir og hvernig þeir munu byggja upp sitt samfélag. Ég held að það sé númer eitt, tvö og þrjú að hlusta á heimamennina og fylgja þeirra ráðum af því að það eru þeir sem eru að fara að byggja upp þetta samfélag. Það eru þeir sem ætla að byggja upp þessa framtíð og við eigum að styðja Grindvíkinga í því.