156. löggjafarþing — 28. fundur,  8. apr. 2025.

námsgögn.

255. mál
[19:41]
Horfa

mennta- og barnamálaráðherra (Guðmundur Ingi Kristinsson) (Flf):

Virðulegur forseti. Ég mæli fyrir frumvarpi til laga um námsgögn. Um er að ræða ný heildarlög um námsgögn sem koma í stað gildandi laga um námsgögn, nr. 71/2007. Frumvarpið er endurflutt frá síðasta kjörtímabili. Þetta frumvarp er liður í sókn ríkisstjórnarinnar í menntamálum þar sem m.a. er lögð áhersla á aðgengi að fjölbreyttum námsgögnum. Undanfarin ár hefur átt sér stað töluverður undirbúningur við stefnumótun í málefnum námsgagna. Árið 2017 setti þáverandi mennta- og menningarmálaráðherra af stað vinnu með það að markmiði að endurskoða fyrirkomulag námsgagnagerðar í leik-, grunn- og framhaldsskólum. Þar á meðal var kortlögð staða námsgagna hér á landi og í nágrannaríkjum og samráð haft við haghafa. Námsgögnin voru í brennidepli þegar menntastefnan til ársins 2030 var samþykkt hér á Alþingi árið 2021 þar sem lögð var áhersla á aðgengi nemenda að vönduðu námsefni. Í fyrstu aðgerðaáætlun menntastefnunnar voru sett fram markmið um að auka gæði, fjölbreytni og aðgengi að náms- og kennslugögnum fyrir nemendur á leik-, grunn- og framhaldsskólastigi með áherslu á stafræn námsgögn í íslensku táknmáli og efni fyrir nemendur með fjölbreyttan tungumála- og menningarbakgrunn. Til að styðja við þessar aðgerðir skipaði þáverandi mennta- og barnamálaráðherra starfshóp um námsgögn í upphafi ársins 2024. Hlutverk starfshópsins var að greina áskoranir og tækifæri vegna fyrirhugaðrar lagasetningar um námsgögn með það að leiðarljósi að auka aðgengi að fjölbreyttum námsgögnum fyrir öll skólastig. Hópnum var ætlað að fjalla um aðgengi að námsgögnum, gæði og gerð þeirra, m.a. í ljósi nýjustu rannsókna. Starfshópurinn er skipaður fulltrúum frá ýmsum hagsmunaaðilum og stóð hann m.a. að málþingi um námsgögn sem var vel sótt. Starfshópurinn skilaði ráðherra tillögum sem lögðu grunn að frumvarpi því sem hér liggur fyrir.

Virðulegur forseti. Eins og áður hefur komið fram felur frumvarpið í sér ný heildarlög um námsgögn. Uppbygging frumvarpsins tekur að nokkru leyti mið af lögum um námsgögn, nr. 71/2007, en jafnframt felast í því nokkur nýmæli. Þar ber hæst að þar er lagt til að öllum börnum að 18 ára aldri standi til boða gjaldfrjáls námsgögn í leik-, grunn- og framhaldsskólum. Markmiðið með gjaldfrjálsum námsgögnum er að tryggja jöfn tækifæri allra barna til náms sem er jafnframt í samræmi við áherslur barnasáttmálans og eitt af markmiðum gildandi menntastefnu. Hingað til hafa gjaldfrjáls námsgögn einvörðungu átt við skyldunám í grunnskóla en í frumvarpinu felst sú grundvallarbreyting að aðgengi að gjaldfrjálsum námsgögnum verður einnig tryggt á leik- og framhaldsskólastigi. Þetta var ein af tillögum starfshóps um námsgögn en um er að ræða stórt verkefni sem samkvæmt frumvarpinu verður innleitt í áföngum til ársins 2029.

Ég hef lengi barist fyrir réttindum fólks og er þetta frumvarp liður í því að auka jafnrétti barna til náms og aðgengi að námsgögnum. Ég er því mjög ánægður að fá að mæla fyrir þessari breytingu sem mun draga úr áhrifum efnahags á nemendur í framhaldsskólum undir 18 ára aldri. Í frumvarpinu er jafnframt lögð til sú breyting frá gildandi lögum að draga fram áherslu á nýsköpun í námsgagnagerð, gæði, framboð og fjölbreytileika. Í samræmi við framangreindar áherslur er m.a. lagt til að þau námsgögn sem njóta stuðnings námsgagnasjóðs eða þróunarsjóðs námsgagna skuli vera vönduð og í samræmi við aðalnámskrár og styðja við fjölbreyttar þarfir barna og ungmenna.

Þá er í frumvarpinu fjallað um heimild ráðherra til að setja gæðaviðmið um gerð og útgáfu námsgagna sem njóta stuðnings hins opinbera. Viðmiðunum er ætlað að vera tæki til að efla gæði námsgagna fyrir námsgagnahöfunda og útgefendur á markaði sem og þá sem úthluta fé úr opinberum sjóðum til námsgagnagerðar. Gert er ráð fyrir að slík viðmið verði ávallt unnin í breiðu samráði ráðuneytis og haghafa.

Þá er í frumvarpinu lagt til það nýmæli að birt verður útgáfuáætlun námsgagna til fimm ára í senn. Útgáfuáætlun fyrir námsgögn var ein af tillögum starfshóps um námsgögn og horfði hópurinn m.a. til þess að í áætlunin myndi tryggja enn frekar að fjármagn til námsefnisgerðar sé nýtt með fullnægjandi hætti. Mikilvægt er að útgáfuáætlunin sé unnin af fjölbreyttum hópi hagsmunaaðila og í virku samstarfi við vettvang, þ.e. skólasamfélagið, bæði kennara, nemendur og aðra sem innan skólakerfisins starfa.

Virðulegur forseti. Í frumvarpinu er fjallað um tvo sjóði, námsgagnasjóð og þróunarsjóð námsgagna, sem eru nú eru starfræktir á grundvelli laga um námsgögn, nr. 71/2007. Námsgagnasjóður hefur það hlutverk að leggja grunnskólum til fé til námsgagnakaupa í því augnamiði að auka við val þeirra um námsgögn. Í frumvarpinu eru lagðar til ákveðnar breytingar á skipulagi sjóðsins og verður ábyrgð á starfrækslu hjá mennta- og barnamálaráðherra í stað þess að yfir honum sé sérstök stjórn. Þróunarsjóður námsgagna hefur það hlutverk að stuðla að nýsköpun, þróun, gerð þýðingar og útgáfu námsgagna fyrir leik-, grunn-, framhalds- og tónlistarskóla. Frumvarpið felur í sér það nýmæli að hlutverk sjóðsins verður að stuðla að þýðingu námsgagna. Þá er að finna það nýmæli að tónlistarskólar geta sótt um stuðning úr þróunarsjóði námsgagna. Þá felast m.a. í frumvarpinu þær breytingar að stjórnarmönnum í þróunarsjóði námsgagna er fjölgað úr fimm í sjö.

Virðulegur forseti. Þetta er fyrsta frumvarpið sem ég mæli fyrir sem mennta- og barnamálaráðherra um menntamál og hlakka ég mikið til að hrinda fleiri breytingum í framkvæmd. Ég hef mikinn metnað til að auka á samstarf milli heimila og skóla, efla kennara enn frekar í starfi sínu og auka kunnáttu nemenda. Námsgögn skipta miklu máli fyrir gæði menntunar. Ég bind vonir við að þetta frumvarp efli námsgagnaútgáfu, gæði námsgagna og þar með skólakerfið í heild til framtíðar.

Varðandi efni frumvarpsins vil ég að öðru leyti vísa til greinargerðar þeirrar er fylgir með frumvarpinu en þar er ítarlega fjallað um og gerð grein fyrir efni þess.

Að lokinni þessari umræðu legg ég til að frumvarpinu verði vísað til hv. allsherjar- og menntamálanefndar og 2. umræðu.