156. löggjafarþing — 28. fundur,  8. apr. 2025.

námsgögn.

255. mál
[19:49]
Horfa

Áslaug Arna Sigurbjörnsdóttir (S) (andsvar):

Virðulegi forseti. Ég vil nú byrja á að óska hæstv. ráðherra til hamingju með að mæla fyrir fyrsta frumvarpinu sínu í þessu mikilvæga embætti menntamálaráðherra. Það skiptir öllu máli að það fái almennilega umræðu hér í þingsal. Mig langar að beina nokkrum spurningum til hæstv. ráðherra. Í fyrsta lagi spyr ég hvort hann telji forgangsröðun fjármuna nægilega góða í þessu frumvarpi, þ.e. að við séum að forgangsraða fjármunum í að hjálpa öllum að greiða fyrir námsgögn í stað þess að greiða fyrir námsgögn þeirra sem þurfa raunverulega á þeim stuðningi að halda, fjármunum sem væru mögulega betur nýttir í að efla menntakerfið okkar og styðja við þá sem þurfa á því að halda, sem og að efla gæði menntunar.

Í öðru lagi þá er ég er gríðarlega ánægð með margar breytingar sem koma fram í frumvarpinu og ég held að það sé tími til kominn að hér fari fram umræða um námsgögn og aukið frelsi og nýsköpun. En betur má ef duga skal í þeim efnum. Það eru of margir kennarar sem hafa bent á það að aðgengi að námsgögnum sé of lítið. Einnig hafa aðilar sem stunda nýsköpun í menntatækni einfaldlega hætt við að starfa með sín fyrirtæki og lausnir á Íslandi þar sem menntakerfið hefur ekki tekið þeim fagnandi sem nýjum og öflugum lausnum til að kenna. Þannig að mig langar í öðru lagi að spyrja hæstv. menntamálaráðherra hvort hann telji nóg að gert til að mæta þessum áskorunum, að stuðla að alvörunýtingu nýsköpunar og tækni í íslensku menntakerfi eða hvort það væri ekki tilvalið að nefndin myndi skoða það sérstaklega í meðferð málsins.