156. löggjafarþing — 28. fundur,  8. apr. 2025.

námsgögn.

255. mál
[19:51]
Horfa

mennta- og barnamálaráðherra (Guðmundur Ingi Kristinsson) (Flf) (andsvar):

Virðulegur forseti. Ég þakka hv. þm. Áslaugu Örnu Sigurbjörnsdóttur fyrir hennar andsvar. Forgangsröðun fjármuna. Já, ég tel því vel varið að forgangsraða í þessu tilfelli. Út af hverju? Jú, vegna þess að við erum að stuðla að því að allir hafi sömu tækifæri óháð efnahag, sama hvernig fjölskylda þeirra stendur. Við vitum að eitt af því sem hefur háð börnum í námi er fátækt. Við verðum að taka á þessum vanda. Ég hjó eftir einu í mínu fyrsta verki sem menntamálaráðherra, sem var ráðstefna með menntamálaráðherrum alls staðar úr heiminum, 26 þjóðir, þegar breski ráðherrann kom til mín og spurði mig að því hvernig við tækjum á málefnum fátæks fólks hérna á Íslandi. Hann sagði að þau væru með kerfi í Bretlandi núna þar sem þau væru búin að sjá að það væri að gliðna á milli þeirra efnameiri og þeirra fátæku í menntun. Fátæk börn væru að detta út úr kerfinu og það væri alltaf að gliðna meira og meira. Þau eru hreinlega komin með plan um það hvernig þau geta stoppað þessa þróun og ætla að fara að gefa í. Þess vegna er mikilvægt, og það var eitt af því sem kom fram; það er mjög mikilvægt að öll börn hafi nákvæmlega sömu tækifæri til þess að fá þau námsgögn sem þau þurfa á að halda án þess að það sé sett á foreldra þeirra hvort þau geti eða hafi efni á því að kaupa þessi gögn. Þess vegna tel ég þessu mjög vel varið. En ég er alveg tilbúinn til að skoða líka hvernig gæði gagnanna sem við munum núna fá með þessu — við getum fengið þýðingar, við getum stuðlað að betri gæðum og ég held að þetta sé mjög stórt skref í þá átt.