námsgögn.
Virðulegur forseti. Ég þakka hæstv. ráðherra fyrir. Ég held að við séum nú meira sammála en ekki þegar kemur að því að það þarf einmitt að styðja við þau börn sem þurfa á því að halda til þess að tryggja jöfn tækifæri til menntunar en á sama tíma þarf að forgangsraða fjármunum vel. Það er ekki þannig að við séum að verja minni fjármunum en löndin í kringum okkur í menntakerfið, heldur erum við að gera það í meira mæli, sérstaklega á yngri stigunum, í grunn- og bóknámi, á framhaldsskólastiginu. En árangurinn sýnir það ekki þannig að þarna fer ekki saman hvernig fjármunum er varið og árangur í kerfinu okkar.
En mig langar að ítreka spurninguna varðandi nýsköpun í námsgagnagerð og frelsi til þess að styðja við fjölbreyttari námsgögn, hvort við séum að ganga nógu langt eða hvort við getum verið enn þá öflugri þjóð í að nýta tæknina, nýta nýjar lausnir fyrir börnin okkar til þess að læra með sem fjölbreyttustum hætti.