156. löggjafarþing — 28. fundur,  8. apr. 2025.

námsgögn.

255. mál
[19:55]
Horfa

mennta- og barnamálaráðherra (Guðmundur Ingi Kristinsson) (Flf) (andsvar):

Virðulegur forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir andsvarið. Ég er alveg sammála henni, það þarf að beita öllum ráðum upp á nýsköpun að gera, að finna og greina og þýða eða bara að búa til bestu námsgögn sem hægt er að hafa á hverjum tíma. Þess vegna erum við líka að setja þetta inn. Við erum að opna fyrir þann möguleika að hægt verði t.d. að þýða námsgögn, sem er eitt af því sem hefur verið kallað eftir, og líka að við séum ekki föst í því heldur að við getum líka þróað námsgögnin eftir þörfum á hverjum tíma. Við erum virkilega að taka á og reyna að sjá til þess í þessu máli. Ég hef trú á því að þegar þetta verður komið alveg á fullt og búið að fjármagna, allt komið af stað, þá höfum við ótrúleg tækifæri til að finna virkilega þá leið sem verður hagstæðust, einkum fyrir börnin.