156. löggjafarþing — 28. fundur,  8. apr. 2025.

námsgögn.

255. mál
[19:56]
Horfa

Rósa Guðbjartsdóttir (S) (andsvar):

Virðulegur forseti. Við erum hérna að ræða námsgögn. Það hefur komið fram að það er gert ráð fyrir því að öll námsgögn á leik-, grunn- og framhaldsskólastigi verði gjaldfrjáls og að sú aðgerð er metin á 340–380 millj. kr. þegar gjaldfrjáls námsgögn verða orðin að veruleika, verða innleidd að fullu árið 2029. Eins og við þekkjum þá hafa mörg sveitarfélög farið þessa leið, alla vega nokkur, í gegnum árin og hefur það reynst svona misvel. Þau hafa afhent námsgögnin í skólunum, foreldrum að kostnaðarlausu. Ég hvet til þess að árangurinn af því fyrirkomulagi verði skoðaður og metinn. Það hefur verið talsverð sóun vegna þessa og spurningar vakna um hvort fjármunum sé rétt ráðstafað með þessu móti. Ég tek undir með hv. þm. Áslaugu Örnu hérna áðan, að það er spurning hvort það sé rétt forgangsröðun að greiða fyrir alla í stað þess að koma til móts við þá sem sannarlega þurfa á því að halda, eins og gert er í grunnskólunum nú þegar. Sveitarfélög sem hafa afhent öll námsgögn hafa verið að stíga skref til baka og draga úr þessu að ósk kennara sem horfa upp á sóun því að það hefur komið í ljós að ekki hefur reynst þörf á því á hverju ári að fylla á námsgögnin og þar fram eftir götunum. Það hefur líka verið bent á það að í frumvarpinu sé ekki að finna skilgreiningu á hugtakinu námsgögn en ef setja á skýrari ramma um þau, þ.e. með gæðaviðmiðum, og hafa þau gjaldfrjáls gæti verið skynsamlegt að skýra hugtakið í frumvarpinu, ekki síst varðandi framhaldsskólana. Hvað eru námsgögn? Er t.d. verið að tala jöfnum höndum um blýanta fyrir grunnskólanema og skrúfjárn fyrir iðnnema eða hvar verða mörkin sett? Mig langar til að heyra hvernig ráðherrann sér fyrir sér að þetta verði útfært, hvernig námsgögnin verða skilgreind og hvernig verður komið í veg fyrir sóun.