námsgögn.
Virðulegur forseti. Ég vil þakka hv. þm. Rósu Guðbjartsdóttur hennar andsvar. Sóun. Jú, það er auðvitað alltaf hætta á sóun. En hvers vegna verður sóun á þeim námsgögnum sem eru til í grunnskólum? Við verðum að passa upp á það, bæði kennarar — og svo þurfum við líka að passa upp á það að innræta hjá nemendum að þau beri ábyrgð á þeim gögnum sem þau eru að fá. Þetta eru fjármunir. Við verðum að átta okkur á því. Ég held að það vanti oft að spá í það og benda á það og upplýsa börnin þegar þau eru að skemma eða bera ekki virðingu fyrir þeim námsgögnum sem þau eru að fá, að þau eru að sóa verðmætum. Ég held að þetta sé mest á ábyrgð okkar foreldranna og kennaranna að taka á þessum vanda ef hann er til staðar. Ég hef heyrt að það sé töluverður vandi í þessu samhengi. Þá þurfum við líka að spyrja okkur: Hvers vegna er þessi vandi? Hvers vegna getum við ekki stöðvað þennan vanda? Hvað er það hjá bæði foreldrum og kennurum sem veldur því að börnin okkar eru einhverra hluta vegna að skemma verðmæti, eins og ég hef heyrt að sé í gangi? Þá verðum við að finna lausn. Það eru nú þegar og hafa alltaf verið, búið að vera í langan tíma, gjaldfrjáls gögn í grunnskólum. Nú erum við að taka þetta yfir í framhaldsskólann líka. Þar af leiðandi held ég að ef við upplýsum börnin á sama tíma um að þau beri ábyrgð á gögnunum og kennum þeim að fara vel með það sem við erum að láta þau fá, þá muni þetta kerfi virka virkilega vel, bæði fyrir börnin, og sérstaklega fyrir þau, en líka að við foreldrar og kennarar munum sjá til þess að þau beri virðingu fyrir þeim gögnum.