námsgögn.
Virðulegur forseti. Ég þakka hæstv. ráðherra fyrir svarið. Ég vildi að það væri svo gott að það væri einfalt að kenna börnum að bera virðingu fyrir námsgögnunum. En ég benti á í fyrra andsvari mínu að það er komin talsverð reynsla í mörgum skólum. Það er kannski ekki alveg nákvæmt sem hæstv. ráðherra nefndi hérna, að þetta væri í grunnskólum almennt. Þetta er í mörgum grunnskólum en alls ekki öllum. Það er komin talsverð reynsla, eins og ég kom inn á í fyrra andsvari, í grunnskólunum á þetta og ég spurði að því hvort hæstv. ráðherra myndi telja að það ætti að líta til þeirrar reynslu og fara inn í það kerfi og fá leiðbeiningar um hvort og hvernig þetta er framkvæmanlegt. Ég sakna þess líka, og myndi kannski vilja fá svar við því núna, hvernig námsgögn verða skilgreind í þessu gjaldfrjálsa fyrirkomulagi. Hvað eru námsgögn nákvæmlega í þessu tilliti?