156. löggjafarþing — 28. fundur,  8. apr. 2025.

námsgögn.

255. mál
[20:02]
Horfa

mennta- og barnamálaráðherra (Guðmundur Ingi Kristinsson) (Flf):

Virðulegur forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir andsvarið. Í gildandi lögum um námsgögn er hugtakið ekki skilgreint, við viljum ekki skilgreina það nákvæmlega. Það getur verið svolítið erfitt að skilgreina námsgögn nákvæmlega en við vitum að þetta er mjög víðfeðmt. Þetta getur verið frá blýöntum til bóka, við getum verið komin inn í smíðastofu. Þetta er ótrúlega vítt svið og þess vegna er ofboðslega erfitt að skilgreina nákvæmlega hvað námsgögn eru. Við lendum kannski alltaf í einhverjum erfiðleikum með það. Þess vegna viljum við ekki negla skilgreininguna algerlega niður.

En ég er alveg sammála hv. þingmanni, auðvitað eigum við að læra af reynslu annarra og passa okkur alltaf á því ef það sem aðrir hafa uppgötvað er ekki að virka. Við eigum að sjá til þess að læra af því og auðvitað alltaf að hafa það hugfast að það er enginn algildur sannleikur heldur verðum við alltaf að læra, við líka, alveg eins og þeir sem eru í skóla. Við þurfum alltaf að passa okkur að staðna ekki heldur læra og taka þá af reynsluna með í dæmið.