námsgögn.
Virðulegi forseti. Ég vil þakka hæstv. mennta- og barnamálaráðherra fyrir þetta frumvarp og hans framsögu hér áðan. Það er örugglega ýmislegt til bóta í þessu frumvarpi. En það sem mig langar að spyrja hæstv. ráðherra um í þessari fyrri atrennu varðar greinargerðina; tilefni og nauðsyn þess að breyta þessum lögum. Það er fyrsta spurning sem ég væri ánægður með að fá svör við frá hæstv. mennta- og barnamálaráðherra. Það er talað um að menntastefnan byggist á fimm stoðum og ein þeirra er hæfni fyrir framtíðina. Ég væri til í að fá að vita hver þessi hæfni er. Hver er hæfnin fyrir framtíðina, ein af fimm eftirfarandi stoðum? Svo myndi ég vilja fá að vita líka, spurning tvö: Á hverju byggja námsgögnin? Hvaðan eru námsgögnin sem gerð verða? Úr hvaða jarðvegi eru þau sprottin? Og spurning þrjú: Það kemur fram að námsgögnin eigi að vera vönduð og fjölbreytt og að þau eigi að byggjast á traustri kennslufræði. Kennslufræði, eins og við vitum, getur verið alls konar. Hingað til hefur okkur ekki gengið vel að fylgja eftir lestri barna þannig að ég spyr líka: Hver er kennslufræðin sem þessi námsgögn eiga að byggja á? Þetta eru þrjár spurningar: Hver er kennslufræðin? Úr hvaða jarðvegi spretta námsgögnin? Og hver er þessi stoð, hæfni fyrir framtíðina? Hvað þýðir það?