156. löggjafarþing — 28. fundur,  8. apr. 2025.

námsgögn.

255. mál
[20:06]
Horfa

mennta- og barnamálaráðherra (Guðmundur Ingi Kristinsson) (Flf) (andsvar):

Virðulegur forseti. Ég þakka hv. þm. Jóni Pétri Zimsen fyrir hans andsvar. Hver er þessi stoð? Hver er framtíðin? Ef ég sæi fram í tímann þá gæti ég svarað þessu alveg bara 100%, en framtíðin er óviss, eins og við vitum alltaf. En nútíðin er það ekki. Við vitum nákvæmlega hvað ætlum að gera í dag en stoðin fyrir framtíðina — við verðum líka að vera opin fyrir því hvað er í framtíðinni. Ég var t.d. að fá inn á borð mitt núna möguleika á því að nýta gervigreind í sambandi við skóla, grunnskóla og annað. Þetta kemur frá Eistlandi. Þeir eru byrjaðir að taka þar inn ákveðna þætti og eru að bjóða okkur að vera með á spennandi braut um það hvernig við ætlum að taka á framtíðinni, hvort við ætlum að nýta líka gervigreindina í framtíðinni inn í skólakerfið. Það er t.d. ein af þessum stoðum sem við getum verið með þarna.

Ef ég skildi rétt um þróun námsgagna, hvernig við ætlum að taka á — ég tel að við séum að opna hérna ákveðna gátt um það og möguleika á því að bæði þýða námsgögn og það verður spennandi fyrir einhverja að framleiða námsgögn. Við erum að reyna að búa til þannig umhverfi að við séum tilbúin á hverjum tíma að taka inn þau námsgögn sem henta best. Ég vona að það verði samtal á milli allra, kennara og fræðimanna og annarra sem að þessu koma, um það að finna bestu leiðirnar, vegna þess að til hvers erum við að þessu? Jú, við erum að gera þetta til þess að mennta börnin okkar og þá hljótum við að standa saman um það að finna bestu leiðina til að gera það og ég tel okkur að vera að opna hérna þá leið til að gera það.