156. löggjafarþing — 28. fundur,  8. apr. 2025.

námsgögn.

255. mál
[20:09]
Horfa

Jón Pétur Zimsen (S) (andsvar):

Virðulegur forseti. Ég þakka svar við andsvari mínu frá hæstv. ráðherra en það komu nú kannski ekki svör við þessu sem ég spurði um. Þetta er ein af fimm stoðum, hæfni fyrir framtíðina. Það er ákveðin hæfni sem hér er verið að vísa í en ekki eitthvað í framtíðinni sem enginn veit hvað er.

Síðan væri gott að fá að vita á hvaða traustu kennslufræði þessi námsgögn eiga að byggja, því að það skiptir náttúrlega öllu máli hvaðan hugmyndirnar koma þegar þú ert að búa til námsgögn. Hingað til höfum við verið að vinna með ákveðna kennslufræði og það er spurning hvort hún sé enn notuð. Verður sama kennslufræði notuð við uppbyggingu þessara námsgagna og sú sem notuð hefur verið? Staðan okkar í menntamálum hefur ekki verið góð þannig að sú reynsla er ekki góð. Þannig að ég spyr: Verður þetta sama kennslufræði sem við ætlum að byggja námsgögnin á núna og sú sem hefur verið notuð? Er þetta sama kennslufræði eða ný?