námsgögn.
Virðulegur forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir hans ræðu. Ég verð bara að segja alveg eins og er að þetta er ekki gamla kennslufræðin. Þetta er bæði nýtt og gamalt. Við hljótum að geta nýtt okkur það besta úr því sem við þekkjum nú þegar en við hljótum líka að horfa til framtíðar og hugsa með okkur: Bíddu, staðan hlýtur að vera þannig að þegar fram í sækir þá hljótum við að hafa bæði fræðimenn, kennara og aðra, eins og við höfum hingað til haft, sem sjá í hag í því að finna upp námsgögn sem henta hverjum tíma, hverjum árgangi, hverju barni, vegna þess að tilgangurinn með þessu er alltaf sá sami: Við erum að mennta börnin okkar. Við erum að passa upp á það að börnin okkar fái öll þau bestu gögn sem er hægt að finna á hverjum tíma og að kennarar geti líka með glöðu geði notað þessi gögn til að sjá til þess að börnin fái þá menntun sem við ætlumst til að þau fái. Þannig að ég tel að við getum blandað því saman sem við þekkjum í dag og líka því sem við eigum eftir að finna í framtíðinni og fengið út mjög góða niðurstöðu.