námsgögn.
Virðulegi forseti. Ég þakka hæstv. mennta- og barnamálaráðherra fyrir að leggja fram þetta frumvarp. Ég stíg í ræðustól til að ræða mál sem snertir kjarnann í velferð samfélagsins okkar, menntun barna og ungmenna. Það frumvarp sem liggur hér fyrir um ný heildarlög um námsgögn markar tímamót. Það er svar við kröfu tímans og réttarbót fyrir nemendur og skref í átt að nútímalegu, sanngjörnu og enn betra menntakerfi. Í frumvarpinu er tekið á veigamiklum þáttum sem varða aðgengi, fjölbreytni, gæði og réttindi nemenda á öllum skólastigum, frá leikskóla og allt til framhaldsskóla og jafnframt tónlistarskóla.
Eitt af stærstu skrefum frumvarpsins er að ákvæði um gjaldfrjáls námsgögn fyrir börn og ungmenni að 18 ára aldri verði lögfest. Þetta þýðir að leikskólanemendur, grunnskólanemendur og nemendur á framhaldsskólastigi fái öll nauðsynleg námsgögn án þess að þurfa að greiða fyrir þau úr eigin vasa eða vasa foreldra sinna. Við vitum að í dag greiða nemendur í framhaldsskólum og fjölskyldur þeirra allt að tugi þúsunda árlega fyrir kennslubækur og annað námsefni. Þessu á nú að linna. Mikil þörf er á betra og fjölbreyttara námsefni á framhaldsskólastiginu í flestum greinum. Við ætlum að taka höndum saman og segja: Menntun er mannréttindi.
Í frumvarpinu er sérstaklega tekið mið af 8. gr. barnasáttmála Sameinuðu þjóðanna þar sem kveðið er á um rétt allra barna til menntunar. Þar segir jafnframt að stjórnvöld skuli vinna að því að framhaldsmenntun verði aðgengileg öllum, m.a. með því að gera hana gjaldfrjálsa. Þetta frumvarp er því ekki aðeins í takt við íslenska menntastefnu til ársins 2030 heldur einnig í samræmi við alþjóðlegar skuldbindingar Íslands. Það er grundvallaratriði í réttarríki að við bregðumst ekki aðeins við vanda heldur vinnum með fyrirbyggjandi hætti til að jafna stöðu barna og tryggja að enginn sé skilinn eftir í skólakerfinu vegna efnahagslegra aðstæðna.
Ég vil einnig ítreka að frumvarpið nær ekki aðeins til framhaldsskóla; leikskólar og grunnskólar fá með þessu frumvarpi skýrari stoðir og aukinn stuðning. Það er mikilvægt. Við vitum að nám byrjar ekki í grunnskóla, það byrjar miklu fyrr. Börn í leikskóla þurfa að hafa aðgang að fjölbreyttu og vönduðu námsefni sem styður málþroska, sköpun og félagsfærni. Í grunnskólum verður áfram úthlutað fjármagni úr námsgagnasjóði en nú með skýrari áherslu á valfrelsi skóla og fjölbreytni í efni sem er í samræmi við aðalnámskrá. Þetta er til þess fallið að styðja við faglegt starf og sjálfstæði skóla og kennara.
Frumvarpið fjallar ekki aðeins gjaldfrjálsa dreifingu námsgagna, það leggur líka ríka áherslu á gæði, nýsköpun og aðgengi. Með eflingu þróunarsjóðs námsgagna er ætlunin að styðja við gerð og útgáfu námsefnis sem tekur mið af fjölbreyttum nemendahópi, nýrri tækni og menningarlegum margbreytileika. Styrkir verða veittir til höfunda, fyrirtækja og skóla til að framleiða efni á íslensku, táknmáli og fyrir nemendur með annað tungumál. Þá er sérstakt fagnaðarefni að tónlistarskólar verða nú hluti af þessari löggjöf og geta sótt um styrki til þróunar námsefnis. Það eykur jöfnuð milli greina og skólastiga og viðurkennir mikilvægi list- og tónlistarmenntunar. Frumvarpið gerir einnig ráð fyrir því að ráðherra birti útgáfuáætlun námsgagna til fimm ára í senn sem verður unnið í samráði við hagsmunaaðila og ekki síst við börnin og ungmennin sjálf. Þessi þátttaka nemenda er í takt við 12. gr. barnasáttmálans og mikilvægt skref í átt að lýðræðislegri menntastefnu. Að auki verður ráðherra heimilt að setja gæðaviðmið við námsgögn sem njóta opinbers stuðnings. Það tryggir að námsefnið sem boðið er upp á sé ekki aðeins fjölbreytt heldur einnig faglegt, traust og í samræmi við námskrá og kennslufræðilega staðla.
Þótt frumvarpið feli í sér útgjöld, áætlað 340–380 millj. kr. á ári þegar gjaldfrjáls námsgögn fyrir framhaldsskólanema að 18 ára aldri verða að fullu innleidd, þá er þetta ekki eyðsla. Þetta er fjárfesting í framtíðinni, fjárfesting í jöfnuði, menntun, lífsgæðum og lýðræði. Við vitum það öll að það borgar sig að fjárfesta í börnum.
Virðulegi forseti. Með þessu frumvarpi er verið að leggja traustar stoðir undir íslenskt menntakerfi. Það er verið að tryggja að börn þurfi ekki að mæta í skólann á misjöfnum forsendum einfaldlega vegna þess að þau hafi ekki efni á bókinni eða efninu sem hin börnin fengu. Við segjum sem samfélag: Öll börn, öll ungmenni eiga rétt á að læra. Við ætlum að tryggja að þau hafi þau tæki og tól sem þau þurfa til að ná árangri, ekki síður en kennarar sem þau treysta. Ég hvet hv. þingmenn eindregið til að styðja þetta frumvarp og sýna í verki að við tökum menntun, jöfnuð og réttindi barna alvarlega.