námsgögn.
Frú forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir ræðuna og get sagt að ég hlakka mikið til að fá tækifæri til að ræða þetta mikilvæga mál hér í þingsal þar sem ég hafði ekki tök á að fara í andsvar við hæstv. ráðherra en ég vænti þess kannski að hann komi í andsvör við mig á eftir þegar ég held ræðu. En mig langar engu að síður að spyrja hv. þingmann, vegna þess að hún lagði mikla áherslu á þetta með gjaldfrjálsu námsgögnin. Það var svo sem ekki alveg einhugur um það í síðustu ríkisstjórn en það var engu að síður niðurstaðan okkar í nefndaráliti varðandi stofnun Miðstöðvar menntunar og skólaþjónustu að stefna að því. Það var því samkomulag flokkanna á milli að svo yrði og þannig rataði það inn í frumvarp hæstv. ráðherra sem hefur áður komið inn í þingið. En ég velti fyrir mér: Hvernig á að fjármagna þetta? Ástæðan fyrir að ég spyr sérstaklega að þessu er að á málefnasviði 20, sem er framhaldsskólastigið, segir samkvæmt fjármálaáætluninni, sem er aftur með mjög takmörkuð gögn og er þar af leiðandi mjög erfitt að lesa eitthvað út úr, að útgjaldaramminn eigi að lækka um 2,5 milljarða á tímabilinu en engu að síður ætlum við að bæta við fríum gjaldfrjálsum námsgögnum fyrir alla nemendur alla vega upp að 18 ára aldri. Og á málefnasviði 22, sem eru þá önnur skólastig, á að lækka útgjaldarammann um 1,5 milljarða. Þarna eru þá 4 milljarðar til lækkunar á þessum tveimur skólastigum eða þessum tveimur málaflokkum en á sama tíma hyggst ríkisstjórnin koma hér að gjaldfrjálsum námsgögnum umfram annað það sem talað er um að gera á þessu kjörtímabili. Ég spyr hv. þingmann: Hvernig hyggjast stjórnarflokkarnir finna rými fyrir þessa mikilvægu fjárfestingu, eins og hv. þingmaður komst að orði?