námsgögn.
Ég þakka hv. þm. Bryndísi Haraldsdóttur fyrir fyrirspurnina. Já, ég kom inn á það, og mér finnst það gríðarlega mikilvægt, að við bjóðum upp á gjaldfrjáls námsgögn, skólagögn fyrir nemendur upp að 18 ára aldri óháð efnahag foreldra. Þá erum við bara að tryggja rétt allra barna af því að það er ekki alltaf samasemmerki milli þess að börnin fái að njóta náms og annars og þess að fjármagn er til staðar einhvers staðar nálægt þeim. En þú talar um hvernig eigi að fjármagna þetta. Það er alveg skýrt að það er stefna þessarar ríkisstjórnar að vinna í þágu menntunar og ungmenna. Þetta snýst um forgangsröðun og hér var lögð fram fjármálaáætlun sem hefði verið gott að taka samtalið um hér inni í þingsal. En þetta snýst um forgangsröðun og þegar fjárlögin koma — það verða skýrar leiðir.