námsgögn.
Forseti. Ég þakka svarið og ég hlakka sannarlega til þegar einhver raunveruleg forgangsröðun og einhverjar upplýsingar liggja fyrir frá hæstv. ríkisstjórn í þessum málum. En frí námsgögn, eins og ég sagði þá var ekki alveg einhugur um þetta. Ég viðurkenni það alveg að eftir að hafa lesið skýrslu og áttað mig á því að námsgögn væru almennt frí í löndunum í kringum okkur, í löndum sem við viljum gjarnan bera okkur saman við, þá finnst mér full ástæða til að við vinnum í þá átt.
Hv. þm. Rósa Guðbjartsdóttir spurði hæstv. ráðherra áðan um skilgreiningu á námsgögnum en ég er ekki viss um að hæstv. ráðherra hafi alveg svarað því. Ég man eftir að hafa rætt það við fyrrverandi hæstv. menntamálaráðherra hvernig hann hygðist skilgreina þetta og ég er líka að beina þessu til hv. allsherjar- og menntamálanefndar. Það þarf að fara mjög „grundigt“ yfir það hvernig á að skilgreina námsgögn. Er skrúfjárn námsgagn eins og penni, blýantur eða bók? Þá velti ég fyrir mér þessu með 18 ára aldurinn þar sem ég á núna til að mynda framhaldsskólanema í verknámi, sem er dýrt og það þarf mikið af áhöldum. En hann er líka orðinn 18 ára vegna þess að viðkomandi barn er jú janúarbarn og þá orðinn 18 ára, þannig að þá velti ég fyrir mér hvar skilin eru. Fá þá skólafélagar sonar míns, sem eru fæddir síðar á árinu, frí námsgögn frá Tækniskólanum á meðan barnið sem varð 18 ára í janúar fær það ekki?