námsgögn.
Ég þakka hv. þingmanni fyrir andsvarið. Það er gott að svara þessu. Ég er framhaldsskólakennari og skólameistari, ég er iðnmenntuð og var að kenna í þeim greinum. Í framhaldsskólanum þurfum við að taka stórt skref og við erum líka að tala um þessa innleiðingu, um námsgögnin, hvort sem þau eru í framleiðslu — varðandi gjaldfrjáls námsgögn er þetta tekið í skrefum. Sannarlega eru þetta námsgögn sem nemendur eru að fá í iðngreinum, bæði tól og bækur. Þetta þarf auðvitað að innleiða í þessari vinnu sem er til 2029, þá ætti þetta að vera komið inn að fullu.