námsgögn.
Virðulegi forseti. Ég vil þakka hv. þm. Eydísi Ásbjörnsdóttur fyrir hennar framsögu um þetta mikilvæga og góða mál. Það sem mig langar svolítið að vita varðar það sem mörgum er tíðrætt um, þ.e. jöfn tækifæri og að jafna stöðuna. Þarna er verið að setja inn 340–380 milljónir til viðbótar inn í framhaldsskólann sem frí námsgögn. Stór hluti þeirra sem þiggja þessi fríu námsgögn getur frekar auðveldlega greitt þau án þess að það sjái verulega á pyngjunni hjá þeim. Þá hugsar maður: Væri ekki hægt að nýta peningana betur, að þeir sem geta greitt gerðu það og að þeir sem standa hallari fæti fengju þá meira þannig að staðan yrði almennilega jöfnuð en ekki að við séum að ausa fé í fólk sem hefur leikandi efni á því að greiða fyrir námsgögnin? Það sé almennt einhvern veginn þannig að menn greiði fyrir það sem er þörf á. Ég skil vel að námsgögn fyrir þá sem hafa ekki efni á þeim eigi að sjálfsögðu að vera frí.
Síðan vil ég spyrja hv. þingmann sömu spurningar og ég spurði hæstv. ráðherra sem ég fékk ekki svar við. Kannski að hv. þm. Eydís Ásbjörnsdóttir geti svarað henni. Ein af þessum fimm stoðum er hæfni fyrir framtíðina, hvort hún átti sig á því hvaða hæfni er átt við hér í frumvarpinu. Það væri fróðlegt að vita það.