156. löggjafarþing — 28. fundur,  8. apr. 2025.

námsgögn.

255. mál
[20:29]
Horfa

Jón Pétur Zimsen (S) (andsvar):

Virðulegur forseti. Ég þakka hv. þm. Eydís Ásbjörnsdóttur fyrir hennar svar við andsvari mínu. Þá vil ég halda áfram á sömu leið og ég var hér á með hæstv. menntamálaráðherra og það er að spyrja um þessi námsgögn sem verða búin til. Hvaðan koma námsgögnin? Á hverju byggja þau? Námsgögn fyrir hvað? Svo kemur hér fram að þau eigi að byggja á traustri kennslufræði. Það væri gott að fá einhvers konar skilgreiningu á hvaða kennslufræði þetta er því að það er alls konar röng kennslufræði til, eins og hv. þingmaður veit. Okkur hefur ekki gengið nægilega vel, alla vega ekki á grunnskólastiginu, með þeirri kennslufræði sem þar hefur verið iðkuð. Veit hv. þingmaður hvaða kennslufræði þetta er sem námsgögnin verða byggð á? Hvaða viðmið eru? Hvaðan spretta þessi námsgögn? Hvaðan koma þau? Hverjar eru rætur námsgagnanna?