námsgögn.
Forseti. Virðulegur forseti. Við ræðum hér frumvarp til laga um námsgögn. Markmið þessara laga samkvæmt frumvarpinu og greinargerð er að tryggja gæði, framboð og fjölbreytileika námsgagna til að styðja við nám og kennslu í leik-, grunn-, framhalds- og tónlistarskólum í samræmi við lög og reglur aðalnámskrár og stefnu stjórnvalda hverju sinni.
Einnig, eins og hér hefur komið fram í umræðunni fram að þessu, er gert ráð fyrir því að námsgögn í leik-, grunn- og framhaldsskólum skuli verða gjaldfrjáls vegna náms barna að 18 ára aldri og er sú aðgerð metin á 340–380 millj. kr. á ári.
Eins og ég nefndi í andsvari hérna áðan hafa mörg sveitarfélög farið þessa leið nú þegar að útvega námsgögn í grunnskólum forráðamönnum að kostnaðarlausu. Hvatti ég til þess að árangurinn af því fyrirkomulagi yrði skoðaður og metinn áður en lengra er haldið í þessum efnum því að það hefur verið talsverð sóun vegna þessa. Við veltum hér, þingmenn, áðan upp spurningum um það hvort fjármunum sé raunverulega rétt ráðstafað með því að greiða fyrir alla í stað þess að koma til móts við þá sem sannarlega þurfa á því að halda. Sveitarfélög sem hafa afhent öllum námsgögn hafa verið að stíga skref til baka að ósk þeirra ekki síst sem sjá mikla sóun í kerfinu, bæði vegna þess að nemendur fara misvel með námsgögnin sem þeim eru afhent og innkaupin eru mishagstæð o.s.frv. Einnig benti ég á að í frumvarpinu er ekki að finna skilgreiningu á hugtakinu námsgögn og fleiri þingmenn hafa reynt að fá svör við því í þessari umræðu. Ég held að það sé nauðsynlegt að skýra hugtakið námsgögn betur, ekki síst varðandi framhaldsskólana, því að það er dálítið ólíkt að tala um blýanta og strokleður eða verkfæri fyrir iðnnema. En svör hæstv. ráðherra valda dálitlum áhyggjum vegna þessa, varðandi skilgreiningarnar og upphæðirnar, því að það var ekki hægt að skilja það öðruvísi en það ætti einmitt eftir að skilgreina hvaða námsgögn verða gjaldfrjáls. Talan 340–380 millj. kr., sem frumvarpið gerir ráð, fyrir gæti hæglega snarbreyst. Ég tel að það væri gott ráð að skilgreina hvaða námsgögn á að útvega gjaldfrjálst áður en lengra er haldið. Hér er um umtalsverðan kostnað að ræða sem getur hækkað mjög hratt. Það er augljóst að það er í mörg horn að líta þarna og við verðum að leita leiða til að fara vel með fjármagnið og koma í veg fyrir sóun.
Mig langar að nota tækifærið hér þar sem við fjöllum um þessi mál, námsgögn og allt því tengt, að ræða aðeins útgáfu námsbóka og vekja athygli á að hér á landi rekur ríkið ekki einungis sérstaka námsbókaútgáfu og einokar þar með útgáfu námsefnis fyrir skólana okkar, heldur er Ísland eina ríkið í Evrópu sem hagar málum með þessum hætti. Líklega er Ísland eina landið í hinum vestræna heimi sem nýtir sér ekki einkaframtakið við útgáfu námsbóka. Í stað þess erum við með miðstýrt kerfi í þessum efnum sem sett var á laggirnar fyrir tæpum 90 árum. Vert er að geta þess að áður en Ríkisútgáfa námsbóka var stofnuð árið 1937 og ríkiseinokun komið á hafði ríkt frelsi í útgáfu námsbóka.
Gæði menntakerfisins er ein af svokölluðum stoðum menntastefnunnar sem innleidd var árið 2021 og gildir til 2030 og í frumvarpinu er tekið fram að aðgengi að vönduðu námsefni sé eitt af lykilatriðum gæðamenntunar en ekki er svo sem skilgreint hvað gæðamenntun er. Við þekkjum öll þær risastóru áskoranir sem blasa við í menntamálum hér á landi, eins og við höfum margrætt og verið margrætt hér á hinu háa Alþingi undanfarna daga og vikur, en niðurstöður úr PISA-könnunum bera glögglega vott þarna um. Þegar gæði menntakerfis eru metin eru námsgögn mjög mikilvægur þáttur. Ekki er nóg með að hér á landi einoki ríkið alla gerð námsgagnaútgáfu, heldur er áberandi minna fjármagn veitt í útgáfu námsgagna hér á landi en á öllum hinum Norðurlöndunum, og það á sama tíma og mestu heildarfjármagni er varið hérlendis til menntamála almennt í Evrópu á hvern íbúa, það er mest heildarfjármagn en minnst til námsgagna. Með öðrum orðum; við verjum mestu heildarfjármagni í málaflokkinn en minnsta fjármagni í námsgögn og fáum einna verstu niðurstöðuna í Evrópu.
Ef við tökum dæmi af Finnlandi þá ná grunnskólanemar þar í landi langbesta árangri á PISA-prófum en þar í landi er þrisvar sinnum meira fjármagni varið í námsgögn en hér á landi og fjárframlög til námsgagna hafa hér á Íslandi farið lækkandi að raungildi með árunum. Því ber að taka alvarlega að margir kennarar telja þau námsgögn sem Miðstöð menntunar og skólaþjónustu, sem hét Menntastofnun og áður Námsgagnastofnun og þar áður Ríkisútgáfa námsbóka, býður upp á séu slök að gæðum. Þetta hef ég upplifað í gegnum störf mín í mörg ár hjá sveitarfélagi þar sem þetta ber á góma hjá kennurum þegar þeir ræða þessi mál. Það er merki um metnaðarleysi að árið 2025 sé enn ríkiseinokun á þessu efni og ótrúlegt að ríki viðhaldi slíkri einokun í námsgagnagerð. Kennarar kvarta undan gæðunum. Námsárangur íslenskra barna er afar slakur en hið sovéska kerfi sem hér var komið á fyrir tæpum 90 árum virðist óhagganlegt þótt rauðu ljósin blikki alls staðar. Margir kennarar fara út í það að útbúa sitt eigið kennsluefni og er það mjög virðingarvert og mikill metnaður og hugsjón fyrir starfinu sem býr þar að baki hjá þeim sem koma því við. En kennarar eiga ekki að þurfa að standa í því að útbúa efni sjálfir og að vera kannski að þýða námsgögn yfir á ólík tungumál. Það er mikilvægt að það komi út faglegra efni á mismunandi tungumálum sem nálgast betur þá fjölmörgu nemendur sem búa hér á landi og eru með fjölbreyttan bakgrunn frá mismunandi menningarheimum. Hér eru mikil tækifæri og ekki síst í þeirri áskorun sem blasir við í að efla og styrkja grunnskólana okkar, gæta bæði náms og þar með árangurs nemenda. Það eru mikil tækifæri í því að gefa útgáfu námsgagna frjálsa og treysta kennurunum sjálfum til að velja námsefni fyrir nemendur sína líkt og tíðkast t.d. á Norðurlöndunum og annars staðar í Evrópu, eins og ég nefndi áðan. Ef við treystum kennurum til að kenna börnunum okkar eigum við að geta treyst þeim til að velja sjálfir námsgögnin sem þeir nota. Eins og staðan er núna hafa þeir mjög takmarkað val um námsgögn önnur en þau sem ríkisstofnanirnar bjóða upp á. Kerfið eins og það er núna í þessum efnum er metnaðarlaust, virðulegi forseti.