námsgögn.
Virðulegi forseti. Ég vil þakka Rósu Guðbjartsdóttur fyrir mjög áhugaverða punkta vegna þess að hún felldi eiginlega áfellisdóm yfir síðustu ríkisstjórn og stjórn menntamála undanfarinna ára, en það er bara á undanförnum tveimur, þremur mánuðum sem núverandi ríkisstjórn hefur haft með menntamálin að gera. Og það er alveg rétt hjá hv. þingmanni að útgáfa námsefnis hefur verið í ólestri. En af því að þú talar um hvernig væri besta fyrirkomulagið með fríum námsgögnum þá spyr ég hv. þingmann: Hvernig sér hún fyrir sér styrkjafyrirkomulag? Með hvaða hætti ætti þessi framkvæmd að vera þannig að þér fyndist það vera vel úr garði gert?
(Forseti (ÞSv): Ég minni hv. þingmenn á að ávarpa með réttum hætti.)