námsgögn.
Virðulegur forseti. Ég þakka hv. þm. Önnu Maríu Jónsdóttur fyrir andsvarið. Hvernig sé ég fyrir mér styrkjafyrirkomulag? Ég sé ekki fyrir mér styrkjafyrirkomulag. Ég sé fyrir mér eins og það er viðhaft núna í grunnskólunum þar sem er gripið inn í með aðstoð kennara. En það myndi kannski ekki geta gengið í framhaldsskólunum, ég get alveg tekið undir það. Það er nokkuð ljóst. Við yrðum bara að finna út úr því hvernig það yrði framkvæmt. En þetta er einungis spurning um: Er þetta besta ráðstöfun fjármuna, að gefa öllum gjaldfrjáls skólagögn? Þetta er spurning um að finna leiðir til þess að læra af því hvernig þetta hefur verið gert í grunnskólunum áður en þau voru gefin gjaldfrjáls. Við höfum farið þessar leiðir, t.d. með skólamáltíðir áður en þær urðu gjaldfrjálsar. Þá voru til leiðir í grunnskólunum hvað þetta varðar og líka varðandi námsgögn og varðandi ferðir og annað sem börnin þurfa að fara í og ekki allir hafa ráð á. Lærum af því hvernig þetta hefur verið gert í grunnskólunum og notum kannski aðrar aðferðir í framhaldsskólunum.