námsgögn.
Frú forseti. Hv. þm. Rósa Guðbjartsdóttir. Þú nefndir áðan að þér fyndist fjármunum illa varið með því að veita öllum nemendum frí námsgögn. Þess vegna spyr ég: Við hvað viltu miða? Hvernig sérðu fyrir þér að við gætum afgreitt hverjir það eru? Hvar eigum við að setja línuna? Ætlum við að miða við skattframtal foreldranna eða þarf fólk að koma og leita eftir aðstoðinni? Þarf það að óska eftir því að fá frí námsgögn? Ég held að til þess að jafnræði ríki sé best að þetta sé með þeim hætti að allir hafi kost á fríum námsgögnum og þá getur fólk bara afþakkað þau ef því finnst það ekki þurfa á þeim að halda.