námsgögn.
Virðulegi forseti. Ég þakka hv. þm. Önnu Maríu Jónsdóttur fyrir annað andsvar. Ég held að ég hafi aldrei sagt í ræðu minni eða fullyrt um þetta. Maður varpar upp spurningum. Maður spyr: Er þetta rétta leiðin í ráðstöfun fjármuna? Er það endilega? Ég vísaði til þess að við gætum lært margt af því hvernig svona hlutir eru viðhafðir í skólunum, hjá íþróttafélögum þar sem eru dýrar keppnisferðir og annað slíkt. Það eru ákveðin tæki sem hægt er að grípa til. En í menntaskólunum, ég ætla ekki að búa til reglurnar hér og nú, við getum gert það í sameiningu í öðru tómi, en ég sæi það fyrir mér einmitt að fólk gæti leitað eftir þeim ef því fyndist það þurfa á þeim að halda. Mér heyrðist t.d. þingmaðurinn sjálfur hafa komið með eina hugmynd að því hvernig mætti leysa þetta. En þetta er bara spurning um — og ég tala ekki um þegar það er varpað hérna fram 340–380 millj. kr. (Forseti hringir.) og það er ekki einu sinni skilgreint hvað fellur nákvæmlega undir þetta. Þannig að þessi tala gæti (Forseti hringir.) snarhækkað ef skilgreiningin verður kannski önnur — hún er náttúrlega ekki til í dag en (Forseti hringir.) mér heyrðist hæstv. ráðherra ekki alveg vera með það á hreinu og að það væri bara fullkomlega óljóst (Forseti hringir.) hvernig ætti að skilgreina námsgögn.
(Forseti (ÞSv): Forseti sér tilefni til að minna hv. þingmenn á að þegar fjórir veita andsvör þá er mínúta í hvert skipti, ekki ein og hálf mínúta.)