156. löggjafarþing — 28. fundur,  8. apr. 2025.

námsgögn.

255. mál
[20:48]
Horfa

Snorri Másson (M) (andsvar):

Ég þakka hv. þingmanni fyrir svarið. Ég velti áfram fyrir mér með námsgögnin úr því að við erum að ræða þau og kennarana sem hafa, eins og hv. þingmaður lýsti, ekki þetta frelsi til að ákveða hvaða kennslubækur eru notaðar. Svo erum við með, eins og hv. þingmaður lýsti, þetta sovéska kerfi sem er þessi miðlæga námsbókaútgáfa ríkisvaldsins sem var ekki til fyrir árið 1937. Og af því að hv. þingmaður sagði sovéskt þá eru þetta náttúrlega hugmyndafræðileg stjórntæki ríkisins, þ.e. menntakerfið og bækurnar. Hvaða gagn telur hv. þingmaður að sé af því að auka frelsi hvers og eins kennara til að gera þetta? Getur það ekki skapað einhverja ringulreið á sama tíma?