156. löggjafarþing — 28. fundur,  8. apr. 2025.

námsgögn.

255. mál
[20:49]
Horfa

Rósa Guðbjartsdóttir (S) (andsvar):

Virðulegur forseti. Ég þakka hv. þm. Snorra Mássyni fyrir annað andsvar. Ég held að við séum skoðanasystkini að því leyti að meiri fjölbreytni og valfrelsi sem fólk hefur í lífinu sé til bóta og mikilla gæða. Kennarar, eins og ég sagði áðan, hafa gripið til þess ráðs, skapandi kennarar, að hreinlega reyna að búa til sitt eigið efni. Það á náttúrlega ekki að vera þannig. Eins og ég sagði hérna áðan þá treystum við kennurunum til þess að kenna börnunum okkar og við eigum að treysta þeim til að velja það efni sem þeir vilja kenna og telja að henti best þeim börnum og þeim barnahópi og þeim einstaklingum sem þeir eru að kenna. Ég veit til þess að í alþjóðlegri samvinnu þá eru menn gapandi yfir þessu, gapandi yfir því að kennararnir fái ekki sjálfir að velja námsefnið.